Björn Bjarnason

14.11.1944
Roles
Ráðherra
Place
Staður: Háahlíð 14, 105-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Hlíðar, Ísland Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg Sveitarfélag 1950: Reykjavík
More information
Vefbirting: For.: Bjarni Benediktsson (f. 30. apríl 1908, d. 10. júlí 1970) alþm. og ráðherra og 2. k. h. Sigríður Björnsdóttir (f. 1. nóv. 1919, d. 10. júlí 1970) húsmóðir. K. (21. sept. 1969) Rut Ingólfsdóttir (f. 31. júlí 1945) fiðluleikari. For.: Ingólfur Guðbrandsson og k. h. Inga Þorgeirsdóttir. Börn: Sigríður Sól (1972), Bjarni Benedikt (1978). Stúdentspróf MR 1964. Lögfræðipróf HÍ 1971. Hdl. 1979. Útgáfustjóri Almenna bókafélagsins 1971-1974. Fréttastjóri erlendra frétta á Vísi 1974. Deildarstjóri í forsætisráðuneytinu 1974-1975, skrifstofustjóri 1975-1979. Blaðamaður á Morgunblaðinu 1979-1984, aðstoðarritstjóri Morgunblaðsins 1984-1991. Skip. 23. apríl 1995 menntamálaráðherra, lausn 28. maí 1999. Skip. 28. maí 1999 menntamálaráðherra, lausn 2. mars 2002. Skip. 23. maí 2003 dóms- og kirkjumálaráðherra. Alþm. Reykv. 1991-2003, alþm. Reykv. n. síðan 2003 (Sjálfstfl.). Menntamálaráðherra 1995-2002. Dóms- og kirkjumálaráðherra síðan 2003. 4. varaforseti Alþingis 1991-1992. Utanríkismálanefnd 1991-1995 og 2002-2003 (form. 1992-1995), allsherjarnefnd 1991-1995, menntamálanefnd 1991-1995, sérnefnd um stjórnarskrármál 1992-1994. Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins 1991-1995 (form.).
Related objects