Þórhallur Ásgeirsson

1.1.1919 - 12.11.2005
Roles
Ráðuneytisstjóri
Place
Staður: Einimelur 6, 107-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Melarnir, Ísland Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg Sveitarfélag 1950: Reykjavík
More information
Vefbirting: Foreldrar hans voru Ásgeir Ásgeirsson, fv. forseti Íslands, f. 13. maí 1894, d. 15. september 1972, og kona hans Dóra Þórhallsdóttir, f. 23. febrúar 1893, d. 10. september 1964. Systur: Vala (f. 8. júní 1921, d. 15. mars 2005), gift Gunnari Thoroddsen (f. 1910, d. 1983) og Björg (f. 22. febrúar 1925, d. 7. ágúst 1996) gift Páli Ásgeiri Tryggvasyni (f. 1922). Maki: Lilly Knudsen, f. 2. júní 1919 Börn þeirra eru 1) Sverrir, verkfræðingur (f. 1944), kvæntur Ingu Helgadóttur flugfreyju, börn þeirra eru a) Auður, sambýlismaður er Frank Rasmussen, b) Þórhallur, kvæntur Kötlu Sigurðardóttur. 2) Dóra, hjúkrunarfræðingur (f. 1947), gift Magnúsi B. Einarson lækni, börn þeirra eru a) Þórhallur, sambýliskona er Birta Þrastardóttir, dóttir þeirra er Mirra, b) Birgir, kvæntur Mikaelu Granqvist, dóttir þeirra er Björg Anna, c) Anna Lilly, sambýlismaður er Haukur Sigurðsson, d) Einar Björn kvæntur Gunnhildi Sigurhansdóttur, dóttir þeirra er Úlfhildur. 3) Ragna, deildarstjóri (f. 1950), gift Flosa Kristjánssyni aðstoðarskólastjóra, synir þeirra eru a) Þórhallur Örn, kvæntur Ragnhildi Söru Bergstað, synir þeirra eru Tryggvi Þór og Kári Björn, b) Kristján Haukur, kvæntur Suzanne Elizabeth Emanuel, c) Ásgeir Valur, sambýliskona er Maren Brynja Kristinsdóttir. 4) Sólveig, hjúkrunarfræðingur (f. 1956), gift Gunnari Jóakimssyni viðskiptafræðingi, börn þeirra eru a) Dóra, sambýlismaður er Ægir Laufdal Traustason, b) Gréta, c) Jóakim Þór. Þórhallur varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1937, þá 18 ára gamall. Hann stundaði nám í hagfræði og stjórnmálafræði við Stokkhólmsháskóla 1937-1939 og á stíðsárunum við háskóla Minnesota í Bandaríkjunum þar sem hann lauk BA-prófi 1941 og mastersprófi 1942. Að námi loknu hóf Þórhallur störf sem viðskiptafulltrúi við sendiráð Íslands í Bandaríkjunum og starfaði þar til stríðsloka. Árið 1947 tók Þórhallur við starfi ráðuneytisstjóra í viðskiptaráðuneytinu og starfaði þar samfleytt til sjötugs, að frádregnum fjórum árum sem fulltrúi Norðurlanda við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn í Washington. Á þessum tíma vann hann fyrir samtals tólf viðskiptaráðherra. Reference: https://www.mbl.is/greinasafn/grein/1051242/
Related objects