Pétur Mikkel Jónasson
18.6.1920 - 01.10.2020
Roles
Vatnalíffræðingur
More information
Vefbirting:
Foreldrar: Margrét Guðmundsdóttir Ottesen f. 19.02.1890, d. 10.12.1964 og Jónas Halldór Guðmundsson skipasmíðameistari f. 02.09.1891, d. 20.02.1970.
Systkin: Guðmundur, Jón Örn, Ása Valdís.
MakI. Dóra Kristín Gunnarsdóttir ritari f. 04.11.1926.
Börn: Margrét, Kristín.
Störf: Vísindastörf og kennsla við Kaupmannahafnarháskóla, lektor í vatnalíffræði og prófessor.
Pétur Mikkel Jónasson (f.1920) er professor emeritus dr. phil hjá Kaupmannahafnarháskóla og hefur hann starfað við rannsóknarstofu háskólans í vatnalíffræði (Ferskvatnsbiologisk Laboratorium Köbenhavns Universitet) síðan 1956. Pétur var um tíma forseti Alþjóðasamtaka vatnalíffræðinga og Hins íslenska fræðafélags í Kaupmannahöfn. Pétur hefur unnið að rannsóknum á lífríki Þinvallavatns um langt árabil og er höfundur og ritstjóri fræðibóka um Þingvallavatn og Mývatn. Pétur dvaldi sem ungur drengur um árabil hjá afa sínum og ömmu (Ása Þorkelsdóttir 1866-1950 og Guðmundur Jónsson Ottesen 1869-1956) að Miðfelli í Þingvallasveit og tileinkaði bókina um Þingvallavatn minningu þeirra.
Reference:
http://www.natturan.is/frettir/2447/ Skoðað 27.03.2012
Related objects

