Snorri Hallgrímsson

9.10.1912 - 27.01.1973
Roles
Læknir
Place
Staður: Ásvallagata 26, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Vesturbær, Ísland Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg Sveitarfélag 1950: Reykjavík
More information
Vefbirting: Fæddur á Hrafnsstöðum í Svarfaðardal 9. október 1912, dáinn í Reykjavík 27. janúar 1973. Foreldrar Hallgrímur (8. ágúst 1864/ 17. febrúar 1936) bóndi þar Sigurðsson og kona hans Þorláksína (7. nóvember 1869/ 13. nóvember) Sigurðardóttir bónda á Ölduhrygg í Svarfaðardal Jónssonar. Stúd. MA stfd. 1932, 2.eink. (5.25). Cand. med. HÍsl. s. 1936, 1. eink. (170 2/3 st.). Alm. lækningal. 12. mars 1941. Vk. sérfr. í handlækningum og bæklunarsjúkdómum 15. júní 1948. Dr. med. við Karolinska 31. mars 1943. Stgm. héraðsl. í Hvammstangahéraði júlí 1936. Blegd. Hosp. sept. 1936. Aðstl. Skanderborg Amts og Bys. Sgh. okt. 1936-apríl 1937. Kand. Orthopædisk Hosp. í Árósum maí 1937-apríl 1939. Jafnframt aðstl. taugalæknis þar nóvember 1937-janúar 1938. Stgm. héraðsl. í Breiðumýrarhéraði júní-nóvember 1939 og vann þá jafnframt að rannsóknum sauðfjársjúkdóma. Herlæknir í sjálfboðaliði Svía í Finnlandsstyrjöldinni 1939-1940. Aðstl. Karsjukh. í Sth. bækld. maí 1940-janúar 1941. Södra Barnbördshuset Sth. febr. 1941. St. Eriks sjukh. Sth. taugasjúkd. mars-júlí 1941. Aðstl. Karsjukh. bækld. ágúst 1941-júlí 1942 og des. 1942-janúar 1943, skapnaðgd. janúar-mars 1943. St. læknir í Reykjavík maí 1943-1947, áfram eingöngu sem sérfræðingur 1948-1962. 2. aðstl. Lspít. handld. 1944-1945, 1. aðstl., síðar deildarlæknir, janúar 1947-ágúst 1951. Prófessor í handlæknisfræði við HÍsl. og jafnframt yfirlæknir við handld. Lspít. september 1951 til æviloka. Fjöldi námsferða og læknaþinga, m.a. til Svíþjóðar mars-ágúst 1946 (berklahandl. og skapnaðaraðg.), Bandaríkjunum september 1951-júní 1952 (nýjungar í handlæknisfræði með styrk frá Rockefeller Foundation) og mars 1963 (magafrystingaraðgerðir og æðaaðgerðir). Prófdómari við læknadeild HÍsl. 1948-1951. Í læknaráði 1952, í byggingarnefnd Lspít. 1952 og Tilraunastöðvar háskólans í meinafræði að Keldum 1958. Í stjórn Nordisk Kirurgisk Forening frá 1955. Forseti þings skurðlækna á Norðurlöndum, sem haldið var í fyrsta sinn 2. júní 1972. Form. Vísindasjóðs frá stofnun hans 1957 til æviloka. Í stjórn LfR 1948-1950. Form. Skurðlæknafélags Íslands 1957-1961. Fulltrúi HÍsl. í vísindanefnd Evrópuráðs 1960 og 1961 og fulltrúi Íslands í vísindanefnd NATO 1963. Finnski frelsiskrossinn með sverði 4. fl. 1940, með rauðum krossi 4. fl. s.á. Minnispeningur Finnlandsstyrjaldarinnar 1939-1940 með sverði s. á. R. fálk. 1. janúar 1957. R. Kungl Nordstjärneorden 1957. Stórr. fálk. 1. jan. 1972. Rit: Studies on reconstructive and stabilizing operations on the skeleton of the foot. With special reference to subastragalar arthrodesis in the treatment of foot defromities following infantile paralysis (doktorsrit). Milli 10 og 20 ritgerðir í innlend og erlend (einkum skandínavísk) tímarit um efni úr sérgrein sinni. K. 14. janúar 1942 Þuríður (27. júlí 1915) Finnsdóttir framkvæmdarstjóra á Ísafirði, alþingismaður og ráðherra, Jónssonar og k.h. Auðar Sigurgeirsdóttur. B.þ. 1. Margrét (13. mars 1944), 2. Hallgrímur (29. janúar 1947), 3. Gunnar (24. júní 1948), 4. Auður (10. júlí 1953), 5. Finnur (28. ágúst 1954). Snorri var faðir Margrétar og Finns lækna og tengdafaðir Halldórs læknis Baldurssonar.
Related objects