Sigurður Pétursson Eggerz

1.3.1875 - 16.11.1945
Roles
Sýslumaður, Forsætisráðherra
Place
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg Sveitarfélag 1950: Reykjavík
More information
Vefbirting: Sigurður fæddist á Borðeyri 1. mars (kb. 28. febr.) 1875, d. 16. nóv. 1945. For.: Pétur Friðriksson Eggerz (f. 11. apríl 1831, d. 5. apríl 1892) kaupstjóri og 2. k. h. Sigríður Guðmundsdóttir (f. 28. maí 1847, d. 10. júní 1926) húsmóðir. Bróðir Guðmundar Eggerz alþm. og mágur Ólafs Thorlaciusar alþm. K. (2. júlí 1908) Solveig Kristjánsdóttir (f. 8. ágúst 1887, d. 26. febr. 1975) húsmóðir. For.: Kristján Jónsson alþm. og ráðherra og k. h. Anna Þórarinsdóttir, dóttir Þórarins Böðvarssonar alþm. Börn: Erna (1909), Kristján Pétur (1913). Stúdentspróf Lsk. 1895. Lögfræðipróf Hafnarháskóla 1903. Málflutningsleyfi við landyfirréttinn 1906. Settur um stuttan tíma sýslumaður í Rangárvallasýslu 1904, í Barðastrandasýslu 1905 og í Gullbringu- og Kjósarsýslu 1906. Aðstoðarmaður í atvinnu- og samgöngumálaráðuneytinu 1906-1907. Settur 1907 sýslumaður í Rangárvallasýslu. Sýslumaður í Skaftafellssýslu 1908-1914, sat í Vík í Mýrdal. Skip. 21. júlí 1914 ráðherra Íslands, lausn 4. maí 1915. Sýslumaður í Mýra- og Borgarfjarðarsýslum 1915-1917, sat í Borgarnesi. Var jafnframt póstafgreiðslumaður þar um hríð. Settur bæjarfógeti í Reykjavík 1917. Skip. 28. ágúst 1917 fjármálaráðherra, lausn 12. ágúst 1919, en gegndi störfum til 25. febr. 1920. Framkvæmdastjóri Smjörlíkisgerðarinnar í Reykjavík 1920-1922. Skip. 7. mars 1922 forsætis-, dóms- og kirkjumálaráðherra, lausn 5. mars 1924, en gegndi störfum til 22. mars. Varð 1. apríl 1924 bankastjóri Íslandsbanka og gegndi því starfi þar til bankinn var lagður niður 3. febr. 1930. Gerðist þá málaflutningsmaður í Reykjavík og rak þar málaflutningsskrifstofu um skeið. Sýslumaður í Ísafjarðarsýslu og bæjarfógeti á Ísafirði 1932-1934. Sýslumaður í Eyjafjarðarsýslu og jafnframt bæjarfógeti á Akureyri 1934-1945. Fluttist þá til Reykjavíkur og átti þar heima til æviloka. Endurskoðandi Landsbankans 1920-1922. Skip. 1924 í gengisnefnd, 1926 í alþingishátíðarnefnd, 1945 formaður nefndar er vera skyldi mþn. í stjórnarskrármálinu til ráðgjafar og aðstoðar. Alþm. V.-Skaft. 1911-1915, landsk. alþm. 1916-1926, alþm. Dal. 1927-1931 (Ufl., Sjálfstfl. eldri, Sjálfstfl. þversum, Sjálfstfl. eldri, Frjálsfl., Sjálfsfl.). Ráðherra Íslands 1914-1915, fjármálaráðherra 1917-1920, forsætisráðherra 1922-1924. Forseti Sþ. 1922. Varaforseti Sþ. 1917. Samdi leikrit, sögur og ljóð. Reference: Aðfangabók Þjóðminjasafnsins, Mannamyndasafn nr.17843-21805 http://www.althingi.is/cv.php4?nfaerslunr=506 (sótt 4. ágúst 2004).
Related objects