Árni Ragnar Árnason

4.8.1941 - 16.08.2004
Roles
Alþingismaður
Place
Staður: Heiðarhjalli 17, 200-Kópavogi, Kópavogsbær Núverandi sveitarfélag: Kópavogsbær, Kópavogsbær Sveitarfélag 1950: Kópavogshreppur
More information
Vefbirting: For.: Árni Ólafsson (f. 4. nóv. 1919) skrifstofustjóri og k. h. Ragnhildur Ólafsdóttir (f. 5. okt. 1918) húsmóðir. K. (24. nóv. 1962) Guðlaug Pálína Eiríksdóttir (f. 23. nóv. 1944) skrifstofumaður. For.: Eiríkur Björn Friðriksson og k. h. Jófríður Helgadóttir. Börn: Guðrún (1963), Hildur (1966), Björn (1971), Árni (1973). Samvinnuskólapróf 1960. Starfsmaður Sparisjóðsins í Keflavík 1960-1966. Fulltrúi og síðar útibússtjóri Verslunarbanka Íslands í Keflavík 1966-1971. Rak eigin bókhaldsstofu í Keflavík og útibú víðar 1971-1985. Fjármálastjóri hjá varnarliðinu, Vörumarkaðnum og Ragnarsbakaríi 1985-1988. Deildarstjóri hjá varnarliðinu 1988-1991 Í stjórn Hitaveitu Suðurnesja frá 1992. Formaður Heimis, félags ungra sjálfstæðismanna í Keflavík, 1966-1971. Í stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna 1969 og fyrsti varaformaður þess 1971-1973. Fyrsti formaður kjördæmissamtaka ungra sjálfstæðismanna í Reykjaneskjördæmi 1973-1975. Í fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna í Keflavík frá 1964, formaður þess 1987-1991. Í kjördæmisráði Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi frá 1966. Bæjarfulltrúi í Keflavík 1970-1978. Einn af stofnendum JC Suðurnesja og fyrsti forseti félagsins. Sat í landsstjórn JC Íslands um árabil. Landsforseti íslensku JC-hreyfingarinnar 1976-1977. Sat þing Vestur-Evrópusambandsins 1993. Sat á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 1994. Fulltrúi í Þingmannasamtökum Norður-Atlantshafsríkjanna 1993 og 1995. Alþm. Reykn. 1991-2003, alþm. Suðurk. 2003-2004 (Sjálfstfl.). Umhverfisnefnd 1991-1995 og 2003-2004, sjávarútvegsnefnd 1991-2004 (form. 2003-2004), utanríkismálanefnd 1992-2002 og 2003-2004, iðnaðarnefnd 1995-1999 og 1999-2003 og 2004, allsherjarnefnd 1995-1999, efnahags- og viðskiptanefnd 2002-2003, menntamálanefnd 2004. Íslandsdeild NATO-þingsins 2001-2004 (form 2003-2004).
Related objects