Friðrik Ólafsson

26.1.1935 - 04.04.2025
Roles
Skákmeistari, Skrifstofustjóri, Lögfræðingur
Place
Staður: Bauganes 24, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Skerjafjörður, Ísland Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg Sveitarfélag 1950: Reykjavík
More information
Vefbirting: Hann er stórskákmeistari, skrifstofustjóri Alþingis. Foreldrar: Sigríður Símonardóttir f. 8/1 1908 og Ólafur Friðriksson f. 14/2 1905 d. 19/10 1983. Kona hans Auður Júlíusdóttir skrifstofumaður, f. 4/3 1941, dætur þeirra, Bergljót f. 24/8 1962 og Áslaug f. 17/8 1969. Friðrik Ólafsson, f. 26.01,1935, er íslenskur lögfræðingur, fyrrverandi skrifstofustjóri Alþingis og fyrsti íslenski stórmeistarinn í skák. Hann er sá íslenskur skákmanna sem mestum frama hefur náð í skákinni og er t.d. eini íslenski skákmaðurinn sem lagt hefur að velli Bobby Fischer (tvisvar sinnum). Hann var um tíma forseti Alþjóða skáksambandsins (FIDE). Friðrik lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1955 og lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands árið 1968. Hann var fulltrúi í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu frá 1968-1974, forseti Alþjóðaskáksambandsins (FIDE) frá 1978-1982, ritstjóri Lagasafns Íslands frá 1982-1983 og skrifstofustjóri Alþingis frá 1984-2005. Friðrik varð sex sinnum Íslandsmeistari í skák, fyrst árið 1952 og Norðurlandameistari í skák 1953 og 1971. Alþjóðlegur skákmeistari 1956 og árið 1958 varð hann fyrsti íslenski stórmeistarinn í skák. Hann sigraði á skákmótinu í Hastings1955-1956, í Beverwijk í Hollandi1959, í Marianske Kasne í Tékkóslóvakíu árið 1961, á alþjóðlegum skákmótum í Reykjavík 1966, 1972 og 1976 og á Wijk an Zee í Hollandi 1975. Hann veitti forstöðu Skákskóla Friðriks Ólafssonar frá 1982-1984   Reference: Aðfangabók Þjóðminjasafnsins Mms. 35762-37440. https://is.wikipedia.org/wiki/Fri%C3%B0rik_%C3%93lafsson  
Related objects