Hjalti Gestsson
10.6.1916 - 06.10.2009
Roles
Bóndi, Ráðunautur, Framkvæmdastjóri
Place
Staður: Reynivellir 10, 800-Selfossi, Sveitarfélagið Árborg, Selfoss, Ísland
Núverandi sveitarfélag: Sveitarfélagið Árborg, Sveitarfélagið Árborg
Sveitarfélag 1950: Selfosshreppur
More information
Vefbirting:
Var á Hæli, stórunúpssókn, Árn. 1930. Ráðunautur og framkvæmdastjóri Búnaðarsambands suðurlands á Selfossi. Gegndi fjölmörgum félags- og trúnaðarstörfum. Hlaut Íslensku fálkaorðuna fyrir störf sín í þágu bænda.
Hjalti Gestsson fæddist á Hæli í Gnúpverjahreppi í Árnessýslu 10. júní 1916. Hann andaðist á hjúkrunarheimilinu Ljósheimum á Selfossi 6. október 2009.
Foreldrar hans voru Margrét Gísladóttir húsfreyja og organisti, f. 30.9. 1885, d. 7.6. 1969, og Gestur Einarsson, bóndi og oddviti, f. 2.6. 1880, d. 23.11. 1918.
Systkini: Gísli, f. 6.5. 1907, d .4.10. 1984, safnvörður á Þjóðminjasafninu. Einar, f. 15.10. 1908, d. 14.10. 1984, bóndi á Hæli. Ragnheiður, f. 23.5. 1910, d. 19.8. 1912, Steinþór, f. 31.5. 1913, d. 4.9. 2005, bóndi á Hæli, alþingismaður. Þorgeir, f. 3.11. 1914, d. 19.6. 2005, læknir. Ragnheiður, f. 4.2. 1918, d. 26.6. 1997, húsfreyja á Ásólfsstöðum.
Hjalti kvæntist Karen Marie Olesen, íþróttakennara 12. júní 1943, í Kaupmannahöfn, Hún var fædd. 9.2. 1921,
Börn þeirra fjögur eru:
1) Margrét, íþrótta- og handavinnukennari, f. 1.9. 1944, maki Kristján H. Guðmundsson framkvæmdastjóri, f. 10.9. 1943. Þeirra börn eru; a. Halla Karen íþróttakennari, f. 7.2. 1970, maki Elías Níelsson, íþrótta- og lífeðlisfræðingur, f. 21.12. 1967, b. Svava viðskiptafræðingur, f. 13.3. 1974, maki Gunnlaugur Árnason, fjölmiðlafræðingur, f. 1.3. 1974. c. Hjalti, þjálfunar- og lífeðlisfræðingur, f. 1.3. 1978, maki Silja Ósk Leifsdóttir innanhúsarkitekt, f. 16.3. 1979. Barnabörnin eru fjögur.
2) Ólafur, fulltrúi, f. 1.4. 1948, maki Steinunn Ingvarsdóttir hjúkrunarfræðingur, f. 8.6. 1952. Barn þeirra: Snæfríður háskólanemi, f. 28.12. 1987. Fyrir átti Steinunn soninn Atla Sigurðsson rafeindavirkja, f. 2.5. 1976, maki Vaka Sigmarsdóttir, viðskiptafræðingur. Fyrri kona Ólafs var Sigurlína Margrét Ásbergsdóttir, fréttamaður, f. 29.6. 1948, d. 13.1. 1983. Börn þeirra eru: a. Sólveig, BA, f. 1.10. 1971, d. 13.2. 2007. Ekkill hennar, Hermann Þór Karlsson bóndi á Efri-Brúnavöllum, f. 15.4. 1966, b. Hjalti, tæknifræðingur, f. 25.9. 1972. c. María Karen, viðskiptafræðingur, f. 25.2. 1976, maki Valdimar Bjarnason byggingarmeistari og viðskiptafræðingur, f. 19.5. 1972. Barnabörnin eru níu.
3) Unnur, kennari, f. 14.12.1951, maki Friðrik Páll Jónsson, fréttamaður, f. 28.5. 1945. Börn þeirra eru: a. Páll, lögfræðingur, f. 10.1. 1981, b. Magnús háskólanemi, f. 6.12. 1986. c. Hjalti nemi, f. 26.2.1989.
4) Gestur framkvæmdastjóri, f. 22.10. 1956, maki Sólveig Ragnheiður Kristinsdóttir, námsráðgjafi, f. 20.1. 1957. Börn þeirra eru: a. Elísabet, f. 27.1. 1979, d. 13. nóv. 1980. b. Hildur, félagsráðgjafi, f. 6.3. 1981, maki Adolf Ingvi Bragason, viðskiptafræðingur, f. 29.6. 1978. c. Kristín, háskólanemi, f. 8.12. 1988. d. Karen María, f. 24.3. 1996. Þau hjónin eiga eitt barnabarn.
Hjalti ólst upp á Hæli, missti föður sinn kornungur en móðir hans sat áfram jörðina þar til Einar og Steinþór tóku við búsforráðum á brúðkaupsdegi þeirra 12. júní 1937. Hjalti lauk stúdentsprófi 1938 frá MR og hélt þá til Kaupmannahafnar og lauk prófi frá Landbúnaðarháskólanum ásamt sérnámi 1943 en kom heim að lokinni heimstyrjöldinni 1945. Hjalti hóf störf hjá Búnaðarsambandi Suðurlands á Selfossi 1946 og starfaði þar sem ráðunautur í 40 ár og jafnframt sem framkvæmdastjóri þess 1959-1986. Samhliða vann hann að ýmsum fræðslustörfum í þágu landbúnaðar, t.d. með bændanámskeiðum í Stóru-Sandvík 1951-55, framkvæmdastjórn Bændaskólanefndar í Skálholti og stundakennslu við Bændaskólann á Hvanneyri 1949-57. Hjalti var fulltrúi Sunnlendinga á Búnaðarþingi 1967-83, sat þar í ýmsum nefndum, m.a var hann formaður stjórnar Bændahallarinnar.
Hjallti var frumkvöðull að miklum framförum í landbúnaði hérlendis. Hann var í forystu um stofnun Hrossaræktarsambands Suðurlands, Landssambands hestamanna, sauðfjársæðingarstöðvar í Þorleifskoti, tilraunabúsins í Laugardælum. Hann innleiddi nýjan dómstiga í kúadómum, súgþurrkun á heyi, og var framkvæmdastjóri Landbúnaðarsýninganna á Selfossi 1958 og 1978. Hjalti var sýslunefndarmaður Selfyssinga 1958-1970. Hann var virkur í Rótaryklúbbnum á Selfossi um áratugaskeið og var m.a. tvisvar sinnum forseti klúbbsins og hlaut æðstu viðurkenningu samtakanna, Paul Harris-orðuna. Honum var veitt hin íslenska fálkaorða 1988 fyrir störf sín í þágu bænda. Síðasta áratuginn áttu bekkjarsystkinin frá MR, Hjalti og Ástríður H. Andersen, fyrrum sendiherrafrú, náið vináttusamband sem var þeim innihaldsríkt og færði þeim mikla gleði.
Reference:
https://www.islendingabok.is/search
https://www.mbl.is/greinasafn/grein/1305243/?item_num=2&searchid=10fa8249c9ee9e0ca9382a0cd43825d7f85e00a1
Related objects









