Magnús Jónsson
26.11.1887 - 2.4.1958
Roles
Myndlistarmaður, Prófessor, Dósent, Prestur, Alþingismaður, Ráðherra
Place
Staður: Laufásvegur 63, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Sveitarfélag 1950: Reykjavík
Sveitarfélag 1950: Lýtingsstaðahreppur
Núverandi sveitarfélag: Skagafjörður, Skagafjörður
Staður: Mælifell, 560-Varmahlíð, Skagafjörður, Fremribyggð, Ísland
Staður: Hvammur, 311-Borgarnesi, Borgarbyggð, Norðurárdalur, Ísland
Sveitarfélag 1950: Norðurárdalshreppur
More information
Vefbirting:
Magnús Jónsson fæddist í Hvammi í Norðurárdal 26. nóv. 1887, d. 2. apríl 1958.
For.: Jón Ólafur Magnússon (f. 10. febr. 1856, d. 17. febr. 1929) prestur þar og k. h. Steinunn Guðrún Þorsteinsdóttir (f. 25. okt. 1849, d. 23. júlí 1919) húsmóðir.
K. (1. ágúst 1912) Ingveldur Benedikta (Bennie) Lárusdóttir (f. 10. mars 1888, d. 14. des. 1957) húsmóðir. For.: Lárus Benediktsson, sonur Benedikts Þórðarsonar alþm., og k. h. Ólafía Ólafsdóttir, dóttir Ólafs Pálssonar alþm. og prests. Systir Áslaugar konu Þorsteins Þorsteinssonar alþm.
Börn: Unnur Lára (1913), Ólöf Sigríður (1916), Áslaug Inga (1924), Jón Þorsteinn (1927)
Stúdentspróf MR 1907. Las málfræði með ensku að sérgrein við Hafnarháskóla 1907-1908. Guðfræðipróf Prestaskólanum 1911. Heiðursdoktor 1932 við háskólann í Tartu (Dorpat) í Eistlandi.
Stundakennari við unglingaskóla Ásgríms Magnússonar í Reykjavík 1910-1911, við barnaskólann á Ísafirði 1915-1916, við Gagnfræðaskóla Reykvíkinga 1928-1929. Þjónaði Tjaldbúðasöfnuði í Winnipeg júlí-okt. 1911. Dvaldist í Reykjavík frá árslokum 1911 til miðs sumars 1912. Prestur Garða- og Þingvallasafnaða í Norður-Dakota í Bandaríkjunum 1912-1915. Prestur á Ísafirði 1915-1917. Dósent við guðfræðideild Háskólans 1917-1928 og prófessor 1928-1942. Prófessor að nýju 1943-1952, hafði lausn frá kennsluskyldu frá 1947. Skip. 1. maí 1942 atvinnu- og viðskiptamálaráðherra, lausn 14. nóv. 1942, en gegndi störfum áfram til 16. des. Skip. 1947 formaður fjárhagsráðs og gegndi því starfi uns ráðið var langt niður 1. okt. 1953.
Prófdómari við Kvennaskólann í Reykjavík 1910 og 1911. Formaður Prestafélags Íslands 1920-1924. Yfirskoðunarmaður landsreikninganna 1923-1925 og 1931-1936. Kosinn 1925 í bankamálanefnd og í Grænlandsnefnd, 1926 í alþingishátíðarnefnd. Sat í dansk-íslensku ráðgjafarnefndinni 1934-1942. Skip. 1938 í mþn. í skattamálum. Í skilnaðarnefnd 1944. Í orðunefnd 1939-1942, 1943 í skipulagsnefnd um byggingar við Lækjargötu, í útvarpsráði 1943-1956, formaður 1943-1946 og 1953-1956, í bankaráði Landsbankans 1927-1928 og 1930-1950, formaður 1946-1950.
Alþm. Reykv. 1921-1946 (Ufl. (Sjálfstfl. eldri), Uflbl., Borgarfl. eldri, Íhaldsfl., Sjálfstfl.).
Atvinnumálaráðherra 1942.
1. varaforseti Ed. 1937-1942.
Samdi mörg rit og greinar um guðfræðiefni, sögu Íslendinga og stjórnmál.
Ritstjóri: Eimreiðin (1918-1923). Iðunn (1925-1926). Stefnir (1929-1934). Kirkjuritið (1940-1948 og 1954-1955).
Exhibitions:
SÉRSÝNINGAR / ONE MAN EXHIBITIONS
1954 Listvinasalurinn, Reykjavík.
1957 Listkynning Morgunblaðsins, Reykjavík.
1958 Bogasalur Þjóðminjasafnsins, Reykjavík.
Reference:
Aðfangabók Þjóðminjasafns Íslands Mms. 34346,15-37440
http://www.althingi.is/cv.php4?nfaerslunr=417 (sótt 27. júlí 2004)
Bolli Gústavsson, Frjálsmannlegur og stór í sniðum, Morgunblaðið, 29. nóvember 1987.
Próf. Magnús Jónsson opnar málverkasýningu, Vísir, 13. mars 1954.
Magnús Jónsson prófessor hefur opnað málverkasýningu, Alþýðublaðið, 14. mars 1954.
„Ég mála, af því að ég þrái að mála en ekki til að drepa tímann”, Morgunblaðið,
14. mars 1954.
Sýning í Listvinasalnum á málverkum eftir prófessor, Tíminn, 14. mars 1954.
Magnús Jónsson prófessor opnar málverkasýningu í Listvinasalnum, Þjóðviljinn,
14. mars 1954.
10. myndir próf. Magnúsar seldust, Vísir, 15. mars 1954.
G. Þ. Sýning Magnúsar Jónssonar, Alþýðublaðið, 18. mars 1954.
Mikil aðsókn að málverksýningu Magnúsar prófessors, Morgunblaðið, 18. mars 1954.
Hverfisfljót, Tíminn, 18. mars 1954.
Málverkasýningu Magnúsar prófessors lýkur á morgun, Morgunblaðið, 20. mars 1954.
Málverkasýning Magnúsar prófessors, Morgunblaðið, 20. mars 1954.
Sýning Magnúsar Jónssonar enn opin, Morgunblaðið, 23. mars 1954.
Sýning Magnúsar Jónssonar framlengd, Vísir, 27. mars 1954.
Vísir, 20. mars 1954.
Morgunblaðið, 13. október 1957.
Morgunblaðið, 30. október 1958.
Magnús Jónsson prófessor opnar málverkasýningu í Þjóðminjasafninu, Tíminn,
30. mars 1958.
Vísir, 2. apríl 1958.
Málverk eftir Magnús Jónsson, Tíminn, 2. apríl 1958.
Morgunblaðið, 3. apríl 1958.
Related objects








