Hafsteinn Þorvaldsson
28.4.1931 - 26.03.2015
Roles
Framkvæmdastjóri
Place
Staður: Engjavegur 28, 800-Selfossi, Sveitarfélagið Árborg, Selfoss, Ísland
Núverandi sveitarfélag: Sveitarfélagið Árborg, Sveitarfélagið Árborg
Sveitarfélag 1950: Hafnarfjörður
Sveitarfélag 1950: Selfosshreppur
Other name
Guðmundur Hafsteinn Þorvaldsson
More information
Vefbirting:
Foreldrar: Þorvaldur Guðmundsson, f. 25.9. 1900, d. 26.6. 1975, og Lovísa Aðalbjörg Egilsdóttir, f. 7.9. 1908, d. 8.2. 1994.
Maki: Ragnhildur Ingvarsdóttir, f. 13.8. 1929, d. 16.12. 2006,
Þau eignuðust fimm börn:
1) Þorvaldur, f. 1950, kvæntur K. Hjördísi Leósdóttur og eiga þau þrjú börn og sex barnabörn.
2) Ragnheiður, f. 1952, gift Birgi Guðmundssyni og eiga þau tvö börn.
3) Þráinn, f. 1957, kvæntur Þórdísi L. Gísladóttur og eiga þau tvær dætur.
4) Aðalbjörg, f. 1959, gift Ólafi Ó. Óskarssyni og eiga þau eina dóttur.
5) Vésteinn, f. 1960, kvæntur Önnu Östenberg og eiga þau þrjú börn.
Hafsteinn ólst upp í Hafnarfirði til fermingaraldurs en fluttist með foreldrum sínum að Lambhúskoti í Biskupstungum og síðar að Syðri-Gróf í Villingaholtshreppi. Hafsteinn tók við búskapnum í Syðri-Gróf árið 1953 ásamt konu sinni Ragnhildi og bjó þar til 1961 að hann fluttist á Selfoss ásamt fjölskyldu sinni.
Hafsteinn nam við Íþróttaskólann í Haukadal 1946-1948. Hann lauk fyrri hluta Lögregluskólans 1964 og kennaranámskeiði í hjálp í viðlögum hjá RKÍ 1968. Þá sótti hann ýmis námskeið m.a. í Stjórnunarskóla Íslands og endurmenntun. Hafsteinn var starfsmaður Selfosshrepps, lögreglumaður og sölumaður 1961-1967. Hann var forstöðumaður Sjúkrahússins á Selfossi 1967-1981 og framkvæmdastjóri Sjúkrahúss Suðurlands og Heilsugæslustöðvar Selfoss 1982-1995.
Hafsteinn tók mikinn þátt í félagsmálum og gegndi þar mörgum ábyrgðarstörfum. Hann var formaður Umf. Vöku 1950-1961 og Umf. Selfoss 1962-1963, ritari HSK 1961-1970 og UMFÍ 1965-1969 og formaður UMFÍ 1969-1979. Hann var formaður Æskulýðsráðs ríkisins 1974-1978 og sat í stjórn Frjálsíþróttasambandsins, Íþróttakennaraskólans og Íþróttamiðstöðvar á Laugarvatni og var fulltrúi UMFÍ í Íþróttanefnd ríkisins. Hann sat 14 ár í sveitarstjórn á Selfossi og var forseti bæjarstjórnar eitt kjörtímabil. Hann sat á Alþingi sem varaþingmaður Framsóknarflokksins 1972. Þá sat hann í fjölmörgum nefndum og ráðum á vegum UMFÍ, ríkis og sveitarfélaga. Hann var framkvæmdastjóri landsmóts UMFÍ á Laugarvatni 1965. Hafsteinn var fjögur ár í stjórn Landssambands eldri borgara og formaður Hörpukórsins á Selfossi í tíu ár. Hann var kjörinn heiðursfélagi Umf. Vöku, Umf. Selfoss, HSK og UMFÍ og var sæmdur fálkaorðunni 2009. Síðustu sex árin átti Hafsteinn í góðu og gefandi vinasambandi við Ingunni Pálsdóttur frá Búrfelli.
Reference:
https://www.mbl.is/greinasafn/grein/1549247/?item_num=3&searchid=b88ee8ae39e4187b96687fcb3953a512c8fc6e5d
Related objects








