Karl Kristjánsson

10.5.1895 - 07.03.1978
Roles
Bæjarstjóri, Sparisjóðsstjóri, Kaupfélagsstjóri, Alþingismaður
Place
Staður: Jökulgrunn 1b, 104-Reykjavík, Reykjavíkurborg Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg Sveitarfélag 1950: Reykjavík
More information
Vefbirting: Jósías Karl Kristjánsson F. í Kaldbak við Húsavík. For.: Kristján Sigfússon (f. 19. sept. 1865, d. 26. febr. 1921) bóndi þar og k. h. Jakobína Albertína Björg Jósíasdóttir (f. 11. okt. 1868, d. 10. des. 1948) húsmóðir. K. (13. nóv. 1920) Pálína Guðrún Jóhannesdóttir (f. 4. sept. 1896, d. 22. mars 1986) húsmóðir. For.: Jóhannes Sigurðsson og k. h. Sesselja Andrésdóttir. Börn: Kristján (1922), Björg (1924), Áki Jóhannes (1928), Gunnsteinn (1932), Svava Björg (1939).        Gagnfræðapróf Akureyri 1916. Farkennari í Tjörneshreppi 1916—1920. Bóndi í Eyvík á Tjörnesi 1920—1932. Framkvæmdastjóri Kaupfélags Þingeyinga 1935—1937. Bæjarstjóri á Húsavík jan.—okt. 1950. Forstjóri Sparisjóðs Kaupfélags Þingeyinga 1932—1965, er sparisjóðurinn var sameinaður Samvinnubankanum. Í hreppsnefnd Tjörneshrepps 1921—1935, oddviti 1929—1935. Oddviti á Húsavík 1937—1950, síðan bæjarfulltrúi til 1970 og forseti bæjarstjórnar 1950—1954 og 1955—1962. Skip. 1939 formaður endurskoðunarnefndar löggjafar um sveitarstjórnarmál. Skip. 1952 í endurskoðunarnefnd löggjafar um skattamál, 1957 í endurskoðunarnefnd vinnulöggjafarinnar og jafnframt formaður endurskoðunarnefndar lagaákvæða um skattamál hjóna. Endurskoðandi Útvegsbankans 1959—1971. Skip. 1965 í samninganefnd um kísilgúrverksmiðju. Í stjórn Kísilgúrverksmiðjunnar, síðar Kísiliðjunnar 1966—1971. Sat fund Þingmannasamtaka Norður-Atlantshafsríkjanna 1965. Alþm. S.-Þing. 1949—1959, alþm. Norðurl. e. 1959—1967 (Framsfl.). 2. varaforseti Sþ. 1953—1959.       Skrifaði fyrsta bindi af Sögu Húsavíkur (1981), greinar um bókmenntir o. fl., orti ljóð og stökur.
Related objects