Halldór Laxness
23.4.1902 - 08.02.1998
Roles
Rithöfundur, Skáld
Place
Staður: Gljúfrasteinn, 270-Mosfellsbæ, Mosfellsbær, Mosfellsdalur, Ísland
Núverandi sveitarfélag: Mosfellsbær, Mosfellsbær
Staður: Laxnes 1, 270-Mosfellsbæ, Mosfellsbær, Mosfellsdalur, Ísland
Sveitarfélag 1950: Mosfellshreppur
Other name
Halldór Kiljan Laxness
More information
Vefbirting:
Foreldrar: Sigríður Halldórsdóttir, f. 27.10.1872 á Kirkjuferju í Ölfusi, d. 17.09.1951, og Guðjón Helgi Helgason, vegaverkstjóri og bóndi í Laxnesi í Mosfellssveit, f. 23.10.1870 á Lambastöðum i Álftaneshreppi, Mýrasýslu, d. 19.06.1919. Systkin: Sigríður húsmóðir, Helga píanókennari.
Barnsmóðir: Málfríður Jónsdóttir, f. 29.08.1896. Barn: María, húsmóðir, f. 10.04.1923.
Maki I: Ingibjörg Einarsdóttir leikkona, f. 03.05.1908. Barn: Einar, cand. mag., f. 09.08.1931.
Maki II: Auður Sveinsdóttir, f. 30.07.1918. Börn: Sigríður, f. 26.05.1951, og Guðný kvikmyndagerðarmaður, f. 23.01.1954.
Foreldrar maka II: Halldóra Kristín Jónsdóttir, f. 27.08.1892, d. 25.02.1971, og Sveinn Guðmundsson járnsmiður, f. 14.11.1885, d. 16.12. 1956.
Menntun: Gagnfræðapróf frá M.R. 1918. Hætti námi í 4. bekk, 1919. Nám hjá Benediktsmunkum í Lúxemborg 1922-1923 og í Kristmunkaskóla í London 1923-1924. Hefur dvalist langdvölum erlendis og ferðast víða en átt fast heimili að Gljúfrasteini í Mosfellssveit frá 1945.
Félagsstörf: Í stjórn Hins íslenska þjóðvinafélags 1944-1967. Í stjórn Bandalags íslenskra listamanna um skeið um 1945. Forseti Menningartengsla Íslands og Ráðstjórnarríkjanna 1950-1968. Í þjóðleikhúsráði 1948-1968. Í stjórn Máls og menningar frá 1950. Einn þriggja varaforseta Samfélags evrópskra rithöfunda (Communità Europea degli Scrittori) 1960-1968.
Viðurkenningar: Bókmenntapeningur Heimsfriðarráðsins í Vín 1952. Bókmenntaverðlaun Nóbels 1955. Nexö-verðlaunin 1955. Stórkross Hinnar íslensku fálkaorðu 1957. Stórkross sænsku Norðstjörnuorðunnar 1957. Stórriddarakross frönsku orðunnar Ordre des Arts et des Lettres 1963. Sonning-verðlaunin 1969. Heiðursborgari Ghent í Belgíu 1958 og Mosfellshrepps 1972. Heiðursdoktor við Åboháskóla í Finnlandi 1968, við heimspekideild Háskóla Íslands 1972, við Eberhaard-Karls-Universität í Tübingen 1982 og við Háskólann í Edinborg 1977.
Halldór Kiljan Laxness ólst upp í Laxnesi.
Svör við skrám þjóðháttadeildar miðast við Reykjavík, Kjósarsýsla, Mosfellssveit, og víða um heim.
Reference:
Samtíðarmenn, Vilhelm G. Kristinsson ritstýrði, bls. 281-282. Útg.: Vaka-Helgafell, Reykjavík, 1993.
Ísl. samtíðarmenn, I, 275
Related objects











