Jóhannes Sigurðsson
3.8.1908 - 17.01.1984
Roles
Bóndi
Place
Staður: Hnúkur, 371-Búðardal, Dalabyggð, Klofningur, Ísland
Núverandi sveitarfélag: Dalabyggð, Ísland
Sveitarfélag 1950: Klofningshreppur
Staður: Tröð, Súðavíkurhreppur, Álftafjörður, Ísland
Sveitarfélag 1950: Súðavíkurhreppur
More information
Vefbirting:
Jóhannes Sigurðsson. Fæddur 3. ágúst 1908 í Tröð í Álftafirði. Dáinn 17. janúar 1984. Flutti tveggja ára að Kletti í Gufudalssveit, þaðan í Flatey til 10 ára aldurs. Í Reykjavík og nágrenni næstu 10 árin. Flutti um tvítugt aftur vestur og var meðal annars lengi í Rúfeyjum hjá Valdimar bróður sínum. Bóndi á Hnúki frá 1931-1984. Hreppstjóri í Klofningshreppi 1947-1984. Í hreppsnefnd frá 1938. Stöðvarstjóri Pósts og síma. Útibússtjóri hjá Verslun Sigurðar Pálmasonar í Hnúksnesi. Harmonikkuspilari. For. Sigurður Óli Sigurðsson og Helga Þórðardóttir í Súðavík og víðar. Kona Jóhannesar var Sesselja Kristín Teitsdóttir ljósmóðir frá Hlíð í Hörðudal. Barnlaus, en fósturdóttir þeirra var Elsa Kjartansdóttir.
Svör hans við spurningum þþ miðast við Patreksfjörð og Breiðafjörð.
Reference:
Jón Guðnason. 1961. Dalamenn II. Bls. 258.
Ástvaldur Magnússon. Morgunblaðið 13.5.1984. Bls. 41.
Related objects










