Vilhjálmur Ögmundsson
4.1.1897 - 24.8.1965
Roles
Bóndi, Stærðfræðingur, Oddviti, Refaskytta, Sundkennari
Place
Staður: Narfeyri, Dalabyggð
Núverandi sveitarfélag: Dalabyggð
Sveitarfélag 1950: Skógarstrandarhreppur
Staður: Fremri-Vífilsdalur, 371-Búðardal, Dalabyggð
Sveitarfélag 1950: Hörðudalshreppur
Staður: Landspítali v/Hringbraut , 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg
Sveitarfélag 1950: Reykjavík
More information
Vefbirting: Vilhjálmur Ögmundsson. Fæddur 4. janúar 1897. Dáinn 24. ágúst 1965. Var í Verslunarskólanum 1912-1914. Vann við skrifstofustörf hjá Th. Thorsteinsson útgerðamanni 1914-1915. Vann að búi foreldra sinna í Fremri-Vífilsdal 1915-1929 og bóndi þar 1929-30. Bóndi á Narfeyri á Skógarströnd 1930-1965. Sjálflærður stærðfræðingur, sundkennari, refaskytta og oddviti Skógarstrandarhrepps. For. Ögmundur Hjartarson (1866-1953) bóndi og Málfríður Hansdóttir (1864-1965) í Fremri-Vífilsdal í Hörðudal. Bróðir Vilhjálms var Hjörtur (1893-1985). Kona Vilhjálms var Lára Vigfúsdóttir (1900-1992) úr Brokey. Börn þeirra voru Hreiðar (1930-2024), Hulda (1931-1993) og Reynir (1941).
Reference: Jón Guðnason. Dalamenn I. 1961. Bls. 78-80.
Árni Helgason. Viðtal við Vilhjálm Ögmundsson. Mbl. 1.12.1959. Bls. 13.
Minningagreinar. Tíminn 31.8.1965, bls. 7-9 & 14. Mbl. 1.9.1965, bls. 20.
Related objects



