Ómar Hlíðkvist Jóhannsson

10.1.1946 - 11.12.2005
Roles
Framkvæmdastjóri
Place
Staður: Ásbúð 31, 210-Garðabær, Garðabær, Garðabær, Ísland Núverandi sveitarfélag: Garðabær, Garðabær Sveitarfélag 1950: Garðahreppur
More information
Vefbirting: Ómar kvæntist Sesselju Hauksdóttur, leikskólafulltrúa (f. 12.6.1948) 12.8.1972. Foreldrar Ómars voru Jóhann Bjarnason frá Leiðólfsstöðum í Laxárdal í Dal., bókhaldari og verslunarmaður í Búðardal (f. 18.10.1902, d. 14.12.1972) og Þuríður Skúladóttir frá Gillastöðum í Laxárdal í Dalasýslu, húsfreyja (f. 12.3.1907, d. 11.3.1998). Systkin Ómars eru Bjarni Hlíðkvist (f. 1930), Una Svanborg (f. 1934) og Skúli Hliðkvist (f. 1941). Ómar var fæddur í Búðardal og bjó þar til 7 ára aldurs er fjölskyldan fluttist til Reykjavíkur. Ómar og Sesselja bjuggu fyrst í Kópavogi, þá í Vesturbergi í Breiðholti til 1978, síðan á Álftanesi í Bess. til 1988 og að lokum í Garðabæ þar sem Ómar lést árið 2005. Ómar gekk í Samvinnuskólann á Bifröst. Starfaði hjá Skipadeild SÍS, fyrst sem skrifstofumaður, deildarstjóri frá 1967, aðstoðarframkvæmdastjóri frá 1973 og framkvæmdastjóri frá 1985. Var framkvæmdastjóri Samskipa frá 1991-1993. Hann rak eigið skipaflutningafyrirtæki, Kvist ehf., frá 1994. Börn Ómars og Sesselju eru Haukur Hlíðkvist, viðskiptafræðingur (f. 19.9.1971) og Freyja Hlíðkvist, þjóðfræðingur og starfsmaður Þjóðminjasafnsins (f. 5.2.1973). Reference: Heimildir fengnar hjá Freyju Hlíðkvist Ómarsdóttur.
Related objects