Magnús Júlíus Kristjánsson
18.4.1862 - 8.12.1928
Roles
Fjármálaráðherra, Beykir, Verslunarmaður
Place
Staður: Aðalstræti 15, 600-Akureyri, Akureyrarbær, Innbærinn, Ísland
Núverandi sveitarfélag: Akureyrarbær, Akureyrarbær
Sveitarfélag 1950: Akureyri
More information
Vefbirting: F. á Akureyri.
For.: Kristján Magnússon
(f. 7. des. 1824, d. 10. okt. 1898) húsmaður þar og k. h. Kristín Bjarnadóttir
(f. 26. apríl 1827, d. 23. mars 1885) húsmóðir.
K. (12. nóv. 1887)
Dómhildur Jóhannesdóttir (f. 25. júlí 1863, d. 14. mars 1946) húsmóðir.
For.: Jóhannes Jónsson og k. h. Jóhanna Jóhannesdóttir.
Börn: Kristín Vilhelmína
(1888), Jóhann Kristján (1891), Kristín (1893), Jóhanna Kristín (1894),
Friðrik (1896), Friðrik (1903).
Nam beykisiðn á Akureyri og í Kaupmannahöfn 1878—1882, lauk prófi í Kaupmannahöfn.
Vann að verslunarstörfum á Akureyri 1882—1893, setti þá sjálfur á fót
verslun og sjávarútgerð þar og rak til 1917, jafnframt afgreiðslumaður
Eimskipafélagsins 1914—1920. Skip. 1913 yfirfiskmatsmaður á Akureyri.
Forstjóri Landsverslunarinnar 1918—1927. Rak jafnframt útgerð í Reykjavík
frá 1924. Skip. 28. ágúst 1927 fjármálaráðherra og gegndi því starfi til
æviloka, 8. des. 1928.
Bæjarstjórn Akureyrar 1902—1905, 1908—1911 og 1913—1918. Formaður miðstjórnar
Framsóknarflokksins frá 1926. Átti sæti í bankaráði Íslandsbanka frá 1927.
Alþm. Ak. 1905—1908 og 1913—1923, landsk. alþm. 1926—1928 (Heimastjfl.,
Sambfl., Heimastjfl., Framsfl.).
Fjármálaráherra 1927—1928.
Forseti Sþ. 1922 og 1923. 2. varaforseti
Ed. 1917.
Related objects

