Guðrún Sveinsdóttir

30.5.1890 - 23.10.1978
Roles
Kennari
Place
Núverandi sveitarfélag: Skagafjörður, Skagafjörður Sveitarfélag 1950: Lýtingsstaðahreppur Staður: Bjarnastaðahlíð, 560-Varmahlíð, Skagafjörður, Vesturdalur, Ísland
More information
Vefbirting: Guðrún Sveinsdóttir frá Bjarnastaðahlið í Vesturdal, fædd 30. maí 1890 og dáin 23. október árið 1978. Hún var dóttir Þorbjargar Ingibjargar Ólafsdóttur frá Litlu-Hlíð og Sveins Guðmundssonar úr Svartárdal, næst yngst fimmtán systkina. Fædd einhent en hún teiknaði bæði og saumaði og var mikilvirk og alþekkt hannyrðakona þrátt fyrir fötlun sína. Guðrún fór kornung í Kvennaskólann tvo vetur, 1905-1907, en lauk síðan prófi í Kennaraskólanum 1908. Sama ár hóf hún kennslu á Stóra-Hrauni í Flóa, aðeins átján ára gömul, en ári síðar sneri hún heim á æskustövarnar og kenndi börnum i Lýtingsstaðahreppi í nítján ár. Kennslu stundaði hún jafnan síðan í Skagafirði allt fram til ársins 1962, er hún lét af þeim störfum vegna sjóndepru.  Hún sýndi sjúkrahúsinu á Sauðárkróki mikla ræktarsemi og gaf fé til þess þegar það var í smíðum og árið 1972 gaf hún þangað þrjár milljónir. Einnig hafði hún mikinn hug á skógrækt og vann mjög að stofnun skógræktarstöðvar í Varmahlíð og fékkst við gróðursetningu á mörgum stöðum í héraðinu. Loks er þess að geta að tveim kirkjum Skagfirðinga, Goðdalakirkju og Sauðárkrókskirkju gaf hún messuklæði. Reference: http://timarit.is/view_page_init.jsp?issId=264337&lang=da https://timarit.is/page/1414044#page/n9/mode/2up
Related objects