Ólafur Björgúlfsson

25.9.1935 - 05.02.2022
Roles
Tannréttingasérfræðingur
Place
Staður: Tjarnarstígur 10, 170-Seltjarnarnesi, Seltjarnarneskaupstaður Núverandi sveitarfélag: Seltjarnarneskaupstaður, Seltjarnarnesbær Sveitarfélag 1950: Seltjarnarneshreppur Staður: Bessastaðir, Jörð, 225-Garðabær, Garðabær, Álftanes, Ísland Sveitarfélag 1950: Bessastaðahreppur
More information
Vefbirting: Ólafur Björgúlfsson f. 25. sept. 1935 á Bessastöðum á Álftanesi, Bessastaðahr., Gullbr. Faðir: Björgúlfur Aðalsteinn Ólafsson, læknir í Indónesíu og Singapore, síðar í Reykjavík og víða um land, síðast við Holdsveikraspítalann í Kópavogi, jafnframt bóndi á Bessastöðum á Álftanesi, f. 1. mars 1882, d. 15. febr. 1973. For.: Ólafur Jónsson, bóndi í Mávahlíð í Fróðárhr., Snæf., síðar bæjarfógetaskrifari í Reykjavík, f. 14. júlí 1850, d. 5. maí 1910, og k.h. Guðbjörg Melkjörsdóttir, húsfreyja, f. 6. okt. 1847, d. 29. mars 1926. Móðir: Þórunn Benediktsdóttir, húsfreyja á Bessastöðum á Álftanesi og í Reykjavík, f. 9. júní 1893, d. 29. nóv. 1981. For.: Benedikt Sigurður Þórarinsson, dr. phil., kaupmaður og bókasafnari á Vestdalseyri við Seyðisfjörð, N-Múl., og síðar í Reykjavík, f. 8. nóv. 1861, d. 29. ágúst 1940, og fyrri k.h. Sólrún Eiríksdóttir, húsfreyja á Vestdalseyri, f. 19. júlí 1855, d. 4. júlí 1901. Nám: Stúdent frá M.R. 1956. Cand. odont. frá H.Í. í jan. 1965. Tannlækningaleyfi 15. maí 1965. Framhaldsnám í tannréttingum hjá dr. Kaare Reitan í Osló 1965-66. Framhaldsnám í tannréttingum við Tannlæknaskólann í Kaupmannahöfn 1966-68. Evrópuráðs-styrkþegi í Hollandi 1971 til að kynna sér þátt mjúkvefja í myndun andlitsbeina. NATO-styrkþegi í Chicago vorið 1972 til að kynna sér röntgen-sneiðmyndatækni. Sérfræðingsleyfi í tannréttingum 21. nóv. 1988. Störf: Aðstoðartannlæknir hjá Gunnari Þormar í Reykjavík febr.-ágúst 1965. Skólatannlæknir í Osló frá ágúst 1965 til febr. 1966. Aðstoðartannlæknir hjá dr. Kaare Reitan í Osló frá nóv. 1965 til ágúst 1966. Kvöld- og helgarvaktir á tannlæknavaktinni í Osló frá mars 1966 til júlí 1966. Stundakennari í tannréttingum við Tannlæknaskólann í Kaupmannahöfn frá ágúst 1966 til júní 1968. Aðstoðartannlæknir (í hlutastarfi) hjá Hugo Lager í Kaupmannahöfn frá ágúst 1967 til júní 1968. Aðstoðartannlæknir hjá Þórði Eydal Magnússyni í Reykjavík frá ágúst 1967 til júlí 1968. Stundakennari við tannlæknadeild Háskóla Íslands 1973-82. Rak eigin tannlækningastofu í Reykjavík frá 2. ágúst 1969 til 31. jan, 2999 Félags- og trúnaðarstörf: Í stjórn Félags íslenskra tannlæknanema 1961-63. Í stjórn Stúdentaráðs Háskóla Íslands 1962-64. Í námskeiðsnefnd fyrir klínikdömur 1969-71. Félagi í N.O.S. (Samtökum tannréttingalækna á Norðurlöndum) frá stofnun 1969, í E.O.S. (Evrópusamtökum tannréttingalækna) frá 1970 og í A.A.O. (Bandaríska tannréttingafélaginu) frá 1972, og hefur sótt ársþing félaganna nánast árlega. Í sáttanefnd TFÍ 1969-77 og á ný frá 1979, formaður 1992-95. Gjaldkeri í stjórn TFÍ 1970-72, 1978-80 og 1995-97. Endurskoðandi TFÍ 1972-74 og 1980-83. Í ritnefnd Árbókar TFÍ 1973-74. Formaður Golfklúbbs Ness 1981-83. Í stjórn Lífeyrissjóðs tannlækna 1985-86. Forseti 41. þings Skandinavíska tannlæknafélagsins í Reykjavík í júlí 1988. Félagi í Tannréttingafélagi Íslands frá stofnun og fulltrúi Íslands á stofnfundi World Federation of Orthodontics (Heimssambands tannréttingalækna) í San Francisco vorið 1995. Ritstörf: Greinar um tannréttingar í Harðjaxli og Tannlæknablaðinu. Nokkur erindi flutt í Ríkisútvarpið um sama efni. Maki: 14. sept. 1958, Bergljót Guðmundsdóttir Ólafs, f. 19. ágúst 1938, stúdent frá M.H. 1980, B.A. í íslensku og bókmenntum frá H.Í. 1990, húsfreyja. For.: Guðmundur Björnsson Ólafs, bankastjóri Iðnaðarbankans hf. og héraðsdómslögmaður í Reykjavík, f. 6. sept. 1906, d. 1. júlí 1983, og k.h. Elín Magnúsdóttir, húsfreyja, f. 2. júlí 1909, d. 8. sept. 1991. Börn þeirra: 1) Kristín, f. 3. júlí 1957, B.A. í dönsku, íþróttakennari í Reykjavík. Maki I: Hilmar Jóhannsson, f. 29. apríl 1956, rekstrartæknifræðingur. Þau skildu. Maki II: Örn Jóhannsson, f. 24. júlí 1957, byggingatæknifræðingur. Þau skildu. Sambýlismaður: Örn Svavarsson, f. 26. sept. 1952, verslunarmaður. 2) Björgúlfur, f. 6. nóv. 1961, rithöfundur í Reykjavík. Maki: Hanna Margrét Einarsdóttir, f. 12. mars 1973, Kennari. 3) Bergljót, f. 23. ágúst 1964, fatahönnuður í Reykjavík. Sambýlismaður: Sveinn Haukur Klemensson, f. 30. okt. 1965. Þau slitu sambúð. [Heimild: Vefsíða Tannlækningafélags Íslands] Reference: Vefsíða Tannlækningafélags Íslands. http://www.tannsi.is/tannlaeknar/tannlaeknir/nr/201/personal. Sótt 26.8. 2011.
Related objects