Sigurður Júlíus Jóhannesson

9.1.1868 - 12.5.1956
Roles
Skáld, Læknir, Ritstjóri
Place
Núverandi sveitarfélag: Winnipeg, Winnipeg
More information
Vefbirting: Fæddur á Læk í Ölfushr., dáinn í Winnipeg í Kanada. Faðir. Jóhannes Jónsson, bóndi og smiður á Læk í Ölfushr. og síðar á Litla-Leðri í Selvogshr., Árn., síðar lausamaður í Reykjavík (f. 2. júlí 1832, d. 24. júní 1901). Móðir: Guðlaug Hannesdóttir, húsfreyja á Læk í Ölfushr. og á Litla-Leðri í Selvogshr., Árn., síðast vinnukona í Stafholtstungum í Borgarfirði (f. 4. okt. 1846, d. 4. júlí 1882). Nám: Stúdent frá Lærða skólanum í júní 1897. Stundaði nám við Læknaskólann í Reykjavík (cand. phil. 17. júní 1989) uns hann fluttist vestur um haf 1899. Hóf guðfræðinám í The Lutheran Seminary í Maywood í Chicago 1903, en hvarf aftur að læknisfræðinámi og lauk prófi (M.D.) frá Jenner Medical College 30. jan. 1907 og frá National Medical University í Chicago 15. júní 1907. Tók einnig læknapróf í Saskatchewan í Kanada 1907 og hlaut þar lækningaleyfi. Störf: Vinnumaður og lausamaður á Svarfhóli í Stafholtstungum tio 1897. Hóf störf á blaðinu Dagskrá í Reykjavík veturinn 1896 og var ritstjóri þess 1899, uns hann hvarf vestur um haf. Stofnaði barnablaðið Æskuna í Reykjavík 1897 ásamt Stórstúku Íslands og var útgefandi þess og ritstjóri frá okt. 1897 til jan. 1899 (1.-9. tbl.). Við ýmis störf, einkum blaðamennsku, í Winnipeg 1899-1903, m.a. meðstofnandi og ritstjóri Dagskrár II frá 1901-1903. Aðstoðarkennari við Jenner Medical College um skeið meðfram námi. Starfandi læknir í Chicago og Vatnabyggðum í Kanada, Leslie og Wynyard í Saskatchewan, 1907-1913. Líkskoðunarlæknir í Saskatchewan frá 1909. Starfaði við blaðamennsku og ritstjórn í Winnipeg í Manitoba 1914-1920. Starfandið læknir að Lundar og í Winnipeg frá 1920 og fram yfir 1950. Maki: 2. apríl 1905, Halldóra Þorbergsdóttir Jóhannesson, f. 8. apríl 1876, d. 18. jan. 1964. For.: Þorbergur Andrésson Fjeldsted, bóndi á Hamraendum í Stafholtstungnahr. og fleiri stöðum, síðast í Winnipeg (f. 26. jan. 1845, d. 2. okt. 1931) og Sigríður Guðmundsdóttir frá Hamraendum (f. 21. des. 1856, d. ?), alsystir Helgu, fyrri k. Þorbergs. Dætur: Málfríður Sigríður (Frida) og Svanhvít Guðbjörg, f. 1910. [Heimild: Læknar á Íslandi, eftir Gunnlaug Haraldsson, III. bindi, bls. 1367-1368. Þjóðsaga ehf., Reykjavík, 2000.] Foreldrar: Jóhannes Jónsson bóndi, f. 02.07.1832, d. 24.06.1901 og Guðlaug Hannesdóttir f. 04.10.1846, d. 04.07.1882. Maki: Halldóra Þorbergsdóttir Jóhannesson f. 08.04.1876, d. 18.01.1964. Dætur: Málfríður Sigríður (Frida), Svanhvít Guðbjörg g. Josie, með honum á mynd Mms. 36827 a) og b). Störf: Ritstjóri Æskunnar, blaðamennska í Winnipeg, starfandi læknir í Chicago og Kanda.   Reference: Aðfangabók Þjóðminjasafnsins Mms. 35762-37440.
Related objects