Pjetur Sigurðsson

17.2.1896 - 15.10.1971
Roles
Háskólaritari, Mag. art.
Place
Staður: Aragata 7, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Melarnir, Ísland Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg Sveitarfélag 1950: Reykjavík
Other name
Pétur Sigurðsson
More information
Vefbirting: Störf: Bókavörður í Landsbókasafni, háskólaritari, forstjóri Hhí, forstjóri Tjarnarbíós og ÍSÍ. Var í Reykjavík 1910. Háskólaritari í Kirkjustræti 12, Reykjavík 1930. Háskólaritari í Reykjavík 1945. Pétur Sigurðsson háskólaritari fæddist að Ánabrekku á Mýrum 17.2. 1896. Foreldrar: Sigurður Pétursson, fangavörður í Reykjavík, og f.k.h., Guðríður Gilsdóttir húsfreyja. Eiginkona Péturs var Þóra Sigurðardóttir og eignuðust þau fjórar dætur. Pétur ólst upp í stórum systkina- hópi í Reykjavík, lauk stúdentsprófum frá MR 1914, stundaði nám við Hafnarháskóla og varð, ásamt Vilhjálmi Þ. Gíslasyni, fyrstur til að ljúka meistaraprófi í íslenskum fræðum við HÍ, 1923. Pétur var bókavörður við Landsbókasafnið í fjögur ár og vann þar að ritaukaskrám og stóru bókfræðiriti. Hann var háskólaritari 1929-64, en stóran hluta þess embættisferils sá hann um nánast allan rekstur Háskólans og var að auki forstjóri Happdrættis HÍ frá upphafi, framkvæmdastjóri Háskólabíós, ritstjóri Árbókar Háskólans og formaður byggingarnefndar Gamla Garðs. Meistararitgerð Péturs fjallaði um Íslendingabók Sturlu Þórðarsonar. Þrátt annasöm störf liggja eftir hann merkar greinar í íslenskum fræðum. Þá bjó hann til prentunar Kvæðasafn góðvinar síns, Einars Benediktssonar á aldarafmæli skáldsins 1964. Pétur varð heiðursprófessor við Háskóla Íslands 1954, sat í stjórn Hins íslenzka fornritafélags og í stjórn Vísindafélags Íslendinga. Hann var varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík 1929-33, kunnur knattspyrnumaður með Fram á sínum yngri árum, sat í stjórn Fram, var heiðursfélagi þess, formaður Knattspyrnuráðs Reykjavíkur og varaforseti ÍSÍ um skeið.   Reference: Aðfangabók Þjóðminjasafns Íslands. Nr. 28522 - 31552. https://www.islendingabok.is/search?find=p%C3%A9tur+sigur%C3%B0sson+h%C3%A1sk%C3%B3laritari https://www.mbl.is/greinasafn/grein/1498554/  
Related objects