Jónas Kristjánsson
20.9.1870 - 3.4.1960
Roles
Læknir
Place
Núverandi sveitarfélag: Skagafjörður, Skagafjörður
Sveitarfélag 1950: Sauðárkrókur
More information
Vefbirting: Jónas Kristjánsson f. á Snæringsstöðum
í Svínadal 20. sept. 1870, d. í Hveragerði 3. apríl 1960. For.: Kristján
(um 1832/1. maí 1888) bóndi á Snæringsstöðum og k. h. Steinunn (3. sept.
1841/9. okt. 1881) Guðmundsdóttir bónda í Kirkjubæ í Norðurárdal Ólafssonar.
Stúd. Rvík 1896, 1. eink. (88 st.). Cand. med. Lsk. v. 1901, 1. eink. (193
st.). Sjúkrahús m.a. Fæðst. í Kbh. 1901. Héraðsl. í Fljótsdalshéraði ágúst
1901-maí 1911. Þjónaði jafnframt Hróarstunguhéraði nóv. 1905-marz 1906
og okt. 1908-sept. 1910. Sat á Arnheiðarstöðum 1901-1902, á Hrafnkelsstöðum
1902-1903 og síðan að Brekku í Fljótsdal. Héraðsl. í Sauðárkrókshéraði
frá júní 1911 og þjónaði jafnframt jan. 1924 Hofsóshéraði að hluta á móti
héraðsl. í Siglufjarðarhéraði. Lausn frá 31. des. 1938. Fluttist þá til
Rvíkur og var síðan st. læknir þar, unz hann gerðist læknir við heilsuhæli
Náttúrulækningafélags Íslands í Hveragerði frá stofnun þess 1955 til 1958.
Námsferðir til Kbh. 1908, til Englands, Danmerkur, Svíþjóðar, Þýzkalands
og Ameríku 1912-1913, til Ameríku 1921-1922, til London 1929, til Svíþjóðar
og Englands 1933, til Ameríku 1935, til Þýzkalands og Sviss 1938. Fjórar
síðustu ferðirnar fór hann til þess að kynna sér mataræði og náttúrulækningar.
Fór síðar margsinnis utan til flestra fyrrgreindra landa og í sama skyni.
Landskjörinn alþm. 1927-1930. Forseti Framfarafélags Skagfirðinga 1914-1938
og form. Tóbaksbindindisfélags Sauðárkróks. Í stjórn Náttúrulækningafélagsins
á Sauðárkróki 1937-1938 og Náttúrulækningafélags Íslands í Rvík frá stofnun
þess (1939) til æviloka. Heiðursfélagi þess 1945. Afmælissjóður (skipulagsskrá
nr. 210, 1945). Átti frumkvæði að stofnun skátafélagsskapar á Sauðárkróki.
Heiðursmerki Bandalags íslenzkra skáta 1937. Heiðursfélagi í Allnordisk
Folkhälsa og The Californian Society of Naturopathic Physicians. R. fálk.
1. des. 1933. Stórr. fálk. 17. júní 1958.
Rit: Greinar í Lbl. og fleiri tímarit
um heilbrigðismál. Ritlingar útg. NLFÍ. Stofnandi og ritstjóri Heilsuverndar
1946-1949. Þýð.: Kellogg, John Harvy: Alkohol. Úrelt svikalyf, Ak. 1927.
K. 17. sept. 1901 Hansína (17.
maí 1874/21. júlí 1948) Benediktsdóttir prófasts á Grenjaðarstað Kristjánssonar
og k. h. Regine Magdalene Hansdóttur Sívertsen. B. þ. 1. Rannveig (18.
okt. 1903), 2. Regína Margrét (30. apríl 1905/31. ágúst 1923), 3. Guðbjörg
(7. maí 1908), 4. Ásta (9. nóv. 1911), 5. Kristján (12. maí 1914/27. júlí
1947).
Jónas var faðir Kristjáns Jónassonar,
mágur Jóns Jóns Benediktssonar og svili Guðmundar Thoroddsen lækna.
Reference: Aðfangabók Þjóðminjasafnsins, Mannamyndasafn
nr: 25505-28521. (1969-1974)
Læknar á íslandi. 1948.
Gísli Ólafsson ritstýrði. Þriðja útgáfa. Læknafélag Íslands/Ísafoldarprentsmiðja
hf., Reykjavík.
Related objects




