Jón Sigurðsson

13.3.1888 - 05.08.1972
Roles
Hreppstjóri, Alþingismaður, Hreppsnefndarmaður, Gagnfræðingur, Búnaðarþingsfulltrúi, Bóndi, Búfræðingur
Place
Staður: Reynistaður, 551-Sauðárkróki, Skagafjörður, Sæmundarhlíð, Ísland Núverandi sveitarfélag: Skagafjörður, Skagafjörður Sveitarfélag 1950: Staðarhreppur Skag.
More information
Vefbirting: For.: Sigurður Jónsson (f. 13. júní 1848, d. 4. febr. 1921) bóndi þar og k. h. Sigríður Jónsdóttir (f. 22. apríl 1858, d. 11. des. 1928) húsmóðir. K. (20. sept. 1913) Sigrún Pálmadóttir (f. 17. maí 1895, d. 11. jan. 1979) húsmóðir. For.: Pálmi Þóroddsson og k. h. Anna Hólmfríður Jónsdóttir. Sonur: Sigurður (1917). Gagnfræðapróf Akureyri 1903. Búfræðipróf Hólum 1904. Nám í lýðháskólanum í Askov 1906—1907. Búnaðarnám í Danmörku og Noregi 1907—1908. Bústjóri föður síns á Reynistað 1908—1919. Bóndi þar frá 1919 til æviloka, frá 1947 á móti Sigurði syni sínum og í félagi við hann. Kennari í unglingaskóla í Vík í Staðarhreppi 1909—1910. Oddviti Staðarhrepps 1919—1922. Hreppstjóri 1928—1954. Kosinn 1938 í sauðfjársjúkdómanefnd, en sagði því starfi af sér 1942. Sat í framleiðsluráði landbúnaðarins 1947—1961, í nýbýlastjórn 1947—1970. Kosinn 1954 í mþn. um brunatryggingar utan Reykjavíkur, 1959 í mþn. til að endurskoða ábúðarlög. Alþm. Skagf. 1919— 1931 (Framsfl., Sparbl., Borgfl. eldri, Íhaldsfl., Sjálfstfl.), 1933—1934 og 1942—1959, landsk. alþm. (Skagf.) 1934—1937 (Sjálfstfl.). 1. varaforseti Sþ. 1953—1956.
Related objects