Brandur Jón Stefánsson
20.5.1906 - 15.10.1994
Roles
Vegavinnuverkstjóri, Hótelhaldari, Bifreiðastjóri
Place
Staður: Kirkjuvegur 3, 870-Vík, Mýrdalshreppur, Vík í Mýrdal, Ísland
Núverandi sveitarfélag: Mýrdalshreppur, Mýrdalshreppur
Sveitarfélag 1950: Hvammshreppur V-Skaft.
Other name
Vatna-Brandur
More information
Vefbirting:
Fyrsti rútubílstjóri á leiðinni R.vík-Vík, síðar R.vík-Kirkjubæjarklaustur. Grein eftir Brand um bílamenningu á svæðinu er væntanleg í Dynskógum (júlí 1984).
Bifreiðastjóri og frægur vatnamaður og síðar vegavinnuverkstjóri í V-Skaft. Var í Litlahvammi, Skeiðflatarsókn, Skaft. 1910. Bílstjóri í Vikurkauptúni, Víkursókn, V-Skaft. 1930.
Brandur Jón Stefánsson var fæddur í Litla-Hvammi í Mýrdal 20. maí 1906. Hann lést á heimili sínu í Vík í Mýrdal 15. október 1994.
Foreldrar hans voru hjónin Steinunn Helga Árnadóttir frá Snæbýli í Skaftártungu, f. 12. september 1881, d. 20. ágúst 1964, og Stefán Hannesson frá Ljótarstöðum í Skaftártungu, kennari í Litla-Hvammi, f. 16. mars 1876, d. 30. desember 1960.
Systkini Brands voru sjö, Ástríður, f. 1903, d. 1989; Árný Sigríður, f. 1905; Þuríður Guðrún, f. 1907, d. 1982; Baldur, f. 1911; Gunnar, f. 1915, d. 1984; Helga, f. 1917; og Vilborg, f. 1921.
Maki: Guðrún Jóhannesdóttir, f. 13. maí 1914, d. 19. janúar 1988. Frá Skjögrastöðum á Völlum í S-Múlasýslu
Börn Brands og Guðrúnar eru:
Jóhannes Stefán, f. 1933, maki er Þuríður Halldórs, þeirra börn eru Sigfús Guðrún og Stefán Helgi;
Hrönn, f. 1935, maki Guðjón Þorsteinsson, þeirra börn eru Guðrún Brynja, Hafsteinn, Brandur Jón og Margrét Steinunn;
Birgir, f. 1941, maki Jóhanna Þórhallsdóttir, þeirra synir eru Þórhallur og Þorsteinn;
Hörður, f. 1948, sambýliskona Gréta Sigurjónsdóttir, hún á tvö börn, Þóru Björk og Arnar Arnarsbörn;
drengur óskírður, f. 1944, lést skömmu eftir fæðingu.
Barnabörnin eru 17.
Brandur hóf rekstur fólksflutningabifreiða 1928 og varð síðar sérleyfishafi á leiðinni Reykjavík-Vík frá 1941 og síðar Reykjavík-Vík-Kirkjubæjarklaustur til 1957. Hann rak gisti og greiðaþjónustu í Vík frá 1942 til 1957. Vegaverkstjóri var hann frá 1942 til 1976.
Reference:
Breytti fæðingardegi úr 20. 05. 1907 í 20. 05. 1906 samkvæmt Íslendingabók og bók Björns Magnússonar Vestur-Skaftfellingar bindi 1.
Björn Magnússon. Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. I. bindi. Reykjavík: Prentsmiðjan Leiftur H.F., 1970.
Breytinguna annaðist Andri Guðmundsson 230289-2639 þann 10.11.2017
https://www.islendingabok.is/search
https://www.mbl.is/greinasafn/grein/160140/?item_num=5&searchid=f880970ee3b3856d393f55bbdfe4f8adcf5940cd
Related objects






