Guðmundur Hannesson

9.9.1866 - 1.10.1946
Roles
Læknir, Prófessor, Alþingismaður
Place
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg Sveitarfélag 1950: Reykjavík
More information
Vefbirting: F. á Guðlaugsstöðum í Blöndudal 9. sept. 1866, d. í Rvík. 1.okt. 1946. For. Hannes (7.maí 1841/26.mars 1921) bóndi og smiður að Guðlaugsstöðum Guðmundssonar og k.h. Halldóra (31.jan.1835/31.des. 1914) Pálsdóttir bónda að Hvassahrauni Jónssonar. Árið 1885 var hann skólapiltur á Eiðsstöðum í Húnavatnssýslu (sbr. skráning á safngrip nr. Þjms. 2707). Stúd. Rvík. 1887, 1.eink. (89 st.). Cand.med. Hh.v.1894, 1.eink. (197,3 st.). Dr. med. hon.c.HÍsl.9.sept.1941. S. héraðsl. í 14. læknishéraði frá júní 1894 en tók aldrei við því embætti. Héraðsl. í 9. læknishéraði júní 1894-apríl 1896 og sat á Sauðarkróki. Sjúkrahús m.a. Fæðst. í Kbh. 1895-1896 (augnsjúkdómar). Héraðsl. í 11. læknishéraði maí 1896-sept. 1907 og sat á Akureyri. Héraðsl. í Reykjavíkurhéraði apríl 1907-sept. 1911 og var jafnframt kennari við Lsk. (líffærafræði, yfirsetufræði og heilbrigðisfræði). Prófessor við læknad. HÍsl. okt.1911-sept.1936 (líffærafræði og heilbrigðisfræði alla tíð, yfirsetufræði 1911-1925, hjúkrunarfræði 1918-1919 og lífeðlisfræði 1926-1936). Gegndi landlæknisstörfum í orlofi landlæknis okt.1921-mars 1922. Rektor HÍsl. 1915-1916, og 1924-1925. Sk. form. sérstakrar sóttvarnarnefndar í Rvík 2.apríl 1919. Form. Læknafélags norðan- og austanlækna 1902-1904. Í stjórn LfR. 1909-1915 og aftur 1916-1917, þar af form. 1911-1915. Í stjórn LfÍsl. 1918-1932, þar af form. 1918-1923 og aftur 1927-1932. Félagi í Vísindafélagi Íslendinga frá stofnun þess 1.des.1918. Heiðursfélagi í LfR. 9.sept.1936 og Dansk medicinsk Selskab 22.apríl 1932. Heiðursforseti LfÍsl. 1933. Íslenskir læknir gáfu út afmælisrit honum til heiðurs á 70 ára afmæli hans. (Lbl. XXII, 5.tbll.) Kennari við Stýrimannaskólann 1912-1921 og 1922-1932 (hjúkrunarreglur). Alþm. Húnvetninga 1914-1915. Sk. í landsdóm 1906. Sk. í milliþinganefnd um sparnað í ríkisrekstri 1924. Í skipulagsnefnd frá 1921. Heiðursfélagi Hins íslenska bókmenntafélags 1.júlí 1941. Hlaut heiðursmedalíu H. Kummels úr gulli 14.sept. 1934. Stórr.fálk. 1.des. 1926. Kom. dbr.28.sept.1931. Rit: Greinar í innlend og erlend læknarit. Einnig bækur, bæklinga og greinar um læknisfræði, heilbrigðismál, skipulagsmál og almenn landsmál, m.a. Nomina Anatomica Islandica. Íslensk líffæraheiti 1941, og Nomina clinica Islandica. Íslensk læknisfræðiheiti (útgefin af Sigurjóni lækni Jónssyni 1954). Þýð: Tolstoi, L.N.: Opið bréf til klerka og kennimanna, 1903.-Sami höf.:Endurreisn helvítis, 1904. Nokkrir kaflar í bókinni um manninn eftir Fritz Kahn. Benjamin Franklin: Sjálfsævisaga (ásamt Sigurjóni Jónssyni, sem lauk við þýðinguna eftir lát Guðmundar). Í ritstjórn Lbl. 1915-1921. Ritstjóri og útgefandi Læknablaðsins 1901- 1903. K.(1.sept. 1894): Karólína Margrét Sigríður (1.apríl 1871/1.júlí 1927) Ísleifsdóttir prests á Stað í Steingrímsfirði Einarssonar og Gróu Sveinbjarnardóttur. Börn þeirra: 1. meybarn óskírt (27.okt. 1896/26.des. s.á.) 2. Svavar (17.febr. 1989/16.febr. 1960), 3. Hannes Valgarðir (25.febr.1900/27.maí 1959), 4. Anna (25.sept.1902), 5. Leifur (28.sept. 1905/3.júní 1928), 6. Arnljótur (29.júní 1912/13.jan.1955). Guðmundur var faðir Hannesar og afi Helgu Hannesdóttur lækna
Related objects