Jón Ólafsson

20.3.1850 - 11.7.1916
Roles
Alþingismaður, Ritstjóri
Place
Staður: Kolfreyjustaður, 750-Fáskrúðsfjörður, Fjarðabyggð, Fáskrúðsfjörður, Ísland Sveitarfélag 1950: Fáskrúðsfjarðarhreppur
More information
Vefbirting: Sat í Lærða skólanum 1863—1868, tók þar fyrri hluta burtfararprófs 1868. Blaðamaður og síðar ritstjóri Baldurs í Reykjavík 1868—1870. Dvaldist í Björgvin 1870—1871 og fékkst þar við blaðamennsku. Ritstjóri Göngu-Hrólfs í Reykjavík 1872—1873. Var prentun blaðsins bönnuð og fór hann þá til Vesturheims. Dvaldist þar til 1875 og tók m. a. þátt í landkönnunarför til Alaska. Kom til Íslands aftur 1875 og vann um hríð við skrifstofustörf í Reykjavík. Dvaldist í Kaupmannahöfn 1876—1877. Ritstjóri á Eskifirði 1877—1880, í Kaupmannahöfn 1880—1881. Ritstjóri í Reykjavík 1882—1885. Dvaldist áfram í Reykjavík næstu ár og fékkst við kennslu og ýmis önnur störf. Fór aftur til Vesturheims 1890. Ritstjóri í Winnipeg 1890—1894. Fór þá suður í Bandaríki til Chicago og vann þar fyrst nokkur missiri við blaðamennsku, lengst af við „Norden“, en síðar um stund við bókasafn þar í borg. Kom til Íslands aftur vorið 1897 og dvaldist í Reykjavík til æviloka. Vann áfram að blaðamennsku til ársloka 1913, en rak jafnframt bóka- og pappírsverslun um skeið. Stundakennari við Stýrimannaskólann 1899—1901, við Verslunarskólann 1907—1912. Hafði á hendi spjaldskráningu prentaðra bóka í Landsbókasafni 1900—1913. Vann síðustu árin að samningu íslenskrar orðabókar með styrk úr landssjóði. Yfirskoðunarmaður landsreikninganna 1885—1887. Í bæjarstjórn Reykjavíkur 1885—1889.       Alþm. S.-Múl. 1880—1885, 1886—1890 og 1908—1913, kgk. alþm. 1905, en sagði svo af sér (Heimastjfl., Sambfl.). 1. varaforseti Nd. 1913. Milliþingaforseti Nd. 1912—1913.       Fékkst mikið við ritstörf auk blaðamennskunnar, samdi kennslubækur, orti ljóð og fékkst við þýðingar. Ritstjóri: Baldur (1870). Smávegis (1872). Göngu—Hrólfr (1872—1873). Skuld (1877—1883). Þjóðólfur (1883—1885 og 1911). Iðunn (1884—1889). Íslenski Good-Templar (1886—1889). Íslenskt vikublað (1887). Lögberg (1891—1892). Öldin (1891—1892). Heimskringla (1892—1894). Öldin (1893). Skírnir (1896—1902). Nýja öldin (1897—1900). Sunnanfari (1898). Reykjavík (1903—1907 og 1909). Dagblaðið (1906—1907). Iðunn (1915—1916). Reference: www.althingi.is Ljósm.: Hópmynd tekin á Þingvallafundi 1885, sjá 25568 Aðfangabók Þjóðminjasafnsins, Mannamyndasafn nr: 25505-28521. (1969-1974)
Related objects