Lára Margrét Ragnarsdóttir
9.10.1947 - 30.01.2012
Roles
Alþingismaður
Place
Staður: Melhagi 11, 107-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Hagar, Ísland
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Sveitarfélag 1950: Reykjavík
More information
Vefbirting:
For.: Ragnar Tómas Árnason (f. 13. mars 1917, d. 3. mars 1984) útvarpsþulur og verslunarmaður og k. h. Jónína Vigdís Schram (f. 14. júní 1923) læknaritari.
M. (18. júní 1967) Ólafur Grétar Guðmundsson (f. 26. febr. 1946) augnlæknir. Þau skildu. For.: Guðmundur Ólafsson og k. h. Anna Friðriksdóttir.
Börn: Anna Kristín (1966), Ingvi Steinar (1973), Atli Ragnar (1976).
Stúdentspróf MR 1967. Viðskiptafræðipróf HÍ 1977. Framhaldsnám við Verslunarháskólann í Björgvin 1979-1981. Eisenhower Fellow 1990.
Skrifstofustjóri hjá Læknasamtökunum 1968-1972. Ráðgjafi í sjúkrahússtjórn hjá Arthur D. Little, Boston, Bandaríkjunum, 1982-1983. Forstöðumaður áætlana- og hagdeildar Ríkisspítalanna 1983-1985. Framkvæmdastjóri Stjórnunarfélags Íslands 1985-1989. Kennari í heilsuhagfræði við Hjúkrunarskólann 1985-1986 og Nýja hjúkrunarskólann 1986-1989. Forstöðumaður þróunardeildar Ríkisspítalanna 1989-1991.
Í heilbrigðisnefnd Sjálfstæðisflokksins frá 1983, formaður 1990-1992. Í stjórn Steinullarverksmiðjunnar á Sauðárkróki 1986-1989 og frá 1990, formaður stjórnar 1991-1996. Í fulltrúaráði Sólheima í Grímsnesi síðan 1987, í aðalstjórn 1990-1992. Í stjórn Íslensku óperunnar 1987-2000. Í stjórn Íslensk-ameríska félagsins 1987-1996, formaður 1991-1996. Formaður Skálholtsnefndar 1991-1993. Í nefnd um endurskoðun heilbrigðisþjónustu 1991-1993. Formaður nefndar um umferðaröryggismál 1994-1995. Í nefnd um áhrif EES-samningsins á lyfjakostnað 1994-1995. Varamaður fastanefndar Evrópuráðsþingsins um tengsl milli þjóðþinga og almannatengsl 1993-1994, formaður 1994-1997. Varaformaður félags-, heilbrigðis- og fjölskyldunefndar Evrópuráðsþingsins 1997-2000, formaður frá 2000. Sat þing Vestur-Evrópusambandsins 1995-1999, formaður Íslandsdeildar þess. Formaður nefndar um endurskoðun á lögum um helgidagafrið 1995 og í nefnd um fjölskyldustefnu 1995. Varaforseti Evrópuráðsþingsins 1998-2000. Í stjórn International Institute for Democracy frá 1999.
Alþm. Reykv. 1991-2003 (Sjálfstfl.).
Vþm. Reykv. s. okt.- nóv. 2003, febr., apríl-maí og júlí 2004, febr. og des. 2005, febr.-mars 2006 (Sjálfstfl.).
Utanríkismálanefnd 1991-2003, umhverfisnefnd 1991-1999, heilbrigðis- og trygginganefnd 1991-2003.
Íslandsdeild VES-þingsins 1995-1999 (form.), Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins 1991-2003 (form. 1995-2003).
Reference:
www.althingi.is
Related objects
