Benedikt Gröndal
7.7.1924 - 20.07.2010
Roles
Ritstjóri, Alþingismaður, Kennari
Place
Staður: Hjallaland 26, 108-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Fossvogur, Ísland
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Sveitarfélag 1950: Reykjavík
More information
Vefbirting: F. á Hvilft í Önundarfirði.
For.: Sigurður Gröndal
(f. 3. nóv. 1903, d. 6. júní 1979) rithöfundur og veitingamaður, síðar
yfirkennari í Reykjavík og k. h. Mikkelína María Sveinsdóttir (f. 9. jan.
1901), systir Hálfdanar Sveinssonar vþm.
K. (11. ágúst 1947)
Heidi Gröndal (f. 13. apríl 1922) bókavörður. For.: Werner Jaeger og k.
h. Theodora Jaeger. Synir: Jón (1949), Tómas (1955), Einar (1960).
Stúdentspróf MR 1943.
BA-próf 1946 með sögu sem aðalgrein við Harvardháskóla, Bandaríkjunum.
Framhaldsnám sumarið 1947 í Oxford á Englandi.
Íþróttafréttaritari Alþýðublaðsins og jafnframt blaðamaður við það öðru
hverju 1938—1943, fréttastjóri þess 1946—1950. Ritstjóri Samvinnunnar
1951—1958 og jafnframt síðari árin forstöðumaður fræðsludeildar Sambands
íslenskra samvinnufélaga. Ritstjóri Alþýðublaðsins 1959—1969. Skip. 1969
forstöðumaður Fræðslumyndasafns ríkisins. Skip. 1. sept. 1978 utanríkisráðherra,
lausn 12. okt. 1979, en gegndi störfum til 15. okt. Skip. 15. okt. 1979
forsætis- og utanríkisráðherra, lausn 4. des. 1979, en gegndi störfum til
8. febr. 1980. Sendiherra í Svíþjóð 1982—1987, í Austurlöndum 1987—1989,
hjá Sameinuðu þjóðunum í New York 1989—1991.
Í bæjarstjórn Reykjavíkur 1950—1954.
Í stjórn Þingmannasamtaka Norður-Atlantshafsríkjanna 1956—1959, sótti
einnig fundi þeirra 1962—1965, 1968, 1970, 1975 og 1977. Í útvarpsráði
1956—1971, formaður þess 1957—1959 og 1960— 1971. Í nýbýlastjórn, síðar
landnámsstjórn 1959—1974. Skip. 1961 í endurskoðunarnefnd vegalaga og
í nefnd til að endurskoða lög um veitingasölu, gistihúsahald o. fl. og
1964 í nefnd til að semja frumvarp um landgræðslu. Í Rannsóknaráði ríkisins
1956—1971. Kosinn 1966 í endurskoðunarnefnd laga um þingsköp Alþingis.
Í endurskoðunarnefnd hafnalaga 1966. Í endurskoðunarnefnd laga um utanríkisþjónustu
1968 og í endurskoðunarnefnd laga um friðun Þingvalla og um náttúruvernd
1968. Í endurskoðunarnefnd útvarpslaga 1969. Í stjórn Framkvæmdastofnunar
ríkisins 1971—1978. Formaður Alþýðuflokksins 1974—1980. Skip. í nefnd
um nýtingu íslensks sjónvarps og útvarps 1974. Sat á Allsherjarþingi Sameinuðu
þjóðanna 1966. Fulltrúi á hafréttarráðstefnum Sameinuðu þjóðanna. Í bankaráði
Seðlabanka Íslands 1981—1982.
Landsk. alþm. (Borgf.) 1956—1959,
(Vesturl.) 1971— 1978, alþm. Vesturl. 1959—1971, alþm. Reykv. 1978—1982
(Alþfl.).
Utanríkisráðherra 1978—1979, forsætis- og utanríkisráðherra 1979—1980.
1. varaforseti Nd. 1959—1971, 2. varaforseti
Nd. 1974.
Hefur samið sagnfræðirit og rit um þjóðfélagsmál.
Ritstjóri: Voröld (1948). Samvinnan (1951—1958). Alþýðublaðið (1959—1969).
Reference: Alþingismannatal 1845-1975 bls.
50. Skrifstofa Alþingis gaf út Reykjavík 1978.
Related objects



