Lúðvík Jósepsson
16.6.1914 - 18.11.1994
Roles
Ráðherra
Place
Staður: Miðstræti 22, 740-Neskaupstað, Fjarðabyggð, Neskaupstaður, Ísland
Núverandi sveitarfélag: Fjarðabyggð, Fjarðabyggð
Sveitarfélag 1950: Neskaupstaður
More information
Vefbirting:
Bæjarpóstur í Neskaupstað 1930. Kennari, alþingismaður og ráðherra. Síðast búsettur í Neskaupsstað.
Lúðvík Jósepsson Lúðvík Aðalsteinn Jósepsson fæddist 16. júní 1914 í Nesi í Neskaupstað.
Foreldrar: Þórstína Þorsteinsdóttir f. 28.08.1880, d. 01.08.1944 og Jósef Benedikt Gestsson sjómaður f. 13.10.1894, d. 22.03.1969.
Stjúpfaðir: Einar Brynjólfsson sjómaður.
Maki: Fjóla Steinsdóttir f. 15.10.1916, d. 12.12.1997.
Þau eignuðust einn son, Steinar, kennari, f. 2. júní 1936.
Störf: Kennari á Neskaupstað 1934-1943, forstjóri Bæjarútgerðar Neskaupstaðar 1948-1952., alþingismaður 1942-1979, ráðherra.
Lúðvík lauk gagnfræðaprófi frá Akureyri 1933. Hann var kennari við Gagnfræðaskólann í Neskaupstað 1934 til 1943. Starfaði við útgerð 1944 til 1948. Forstjóri Bæjarútgerðar Neskaupstaðar 1948 til 1952. Alþingismaður frá 1942, landskjörinn þingmaður 1942 til 1946, 1949 til 1956 og 1959, var þingmaður Suður-Múlasýslu 1946 til 1949 og 1956 til 1959 og þingmaður Austurlandskjördæmis 1959 til 1979. Sjávarútvegs- og viðskiptamálaráðherra 1956 til 1958 og 1971 til 1974. Lúðvík var bæjarfulltrúi í Neskaupstað 1938 til 1970, forseti bæjarstjórnar 1942 til 1943 og 1946 til 1956. Formaður Samvinnufélags útgerðarmanna í Neskaupstað frá 1946. Í stjórn Fiskimálasjóðs 1947 til 1953. Í stjórn Samlags skreiðarframleiðenda. Í bankaráði Útvegsbanka Íslands 1957 til 1971. Í bankaráði Landsbanka Íslands frá 1980. Fulltrúi á Genfar-ráðstefnu um réttarreglur á hafinu 1958 og 1960 og 1975 til 1982. Í stjórn Framkvæmdasjóðs 1966 til 1968. Í stjórn Atvinnujöfnunarsjóðs 1971 til 1972. Í neyðarráðsnefnd vegna eldgossins á Heimaey 1973. Formaður þingflokks Alþýðubandalagsins 1961 til 1971 og 1975 til 1979. Sat allsherjarþing SÞ 1969. Formaður Alþýðubandalagsins 1977 til 1980.
Reference:
https://www.islendingabok.is/search
https://www.mbl.is/greinasafn/grein/165799/?item_num=11&searchid=4be5332d0a9de8f3b699082138adf97425c1cac7
Related objects









