Sigurður Óli Ólafsson

7.10.1896 - 15.03.1992
Roles
Verslunarmaður, Alþingismaður
Place
Staður: Fossheiði 34, 800-Selfossi, Sveitarfélagið Árborg, Selfoss, Ísland Núverandi sveitarfélag: Sveitarfélagið Árborg, Sveitarfélagið Árborg Sveitarfélag 1950: Selfosshreppur Staður: Staður, 820-Eyrarbakka, Sveitarfélagið Árborg, Eyrarbakki, Ísland Sveitarfélag 1950: Eyrarbakkahreppur
More information
Vefbirting: F. í Naustakoti á Eyrarbakka For.: Ólafur Sigurðsson (f. 7. nóv. 1869, d. 6. apríl 1950) bóndi og söðlasmiður þar, mágur Lárusar Helgasonar alþm., og k. h. Þorbjörg Sigurðardóttir (f. 7. ágúst 1873, d. 18. febr. 1940) húsmóðir. K. (10. okt. 1925) Kristín Guðmundsdóttir (f. 8. febr. 1904, d. 9. júní 1992) húsmóðir. For.: Guðmundur Guðmundsson, bróðir Sigurðar Guðmundssonar afa Þorsteins Pálssonar alþm. og ráðherra og hálfbróðir Sveins Guðmundssonar alþm., og k. h. Ragnheiður Lárusdóttir, dóttir Lárusar Blöndals alþm. Dætur: Þorbjörg (1927), Ragnheiður (1929), Sigríður (1931), Sigríður Ragna (1943). Unglingaskólanám á Eyrarbakka 1911—1913. Verslunarnámskeið 1913. Stundaði ýmis störf til lands og sjávar, var m. a. stundakennari við barnaskólann á Eyrarbakka 1915—1916. Bifreiðarstjóri og verslunarmaður á Eyrarbakka 1919—1927. Kaupmaður á Selfossi 1927—1964. Stundaði verslunar- og skrifstofustörf í Reykjavík 1964—1974.       Var einn af stofnendum Sjálfstæðisfélagsins Óðins í Árnessýslu 1938 og var formaður þess til 1946. Í hreppsnefnd Sandvíkurhrepps 1938—1947 og í hreppsnefnd Selfosshrepps 1947—1962, oddviti 1947—1958. Sýslunefndarmaður 1938— 1958. Formaður skólanefndar Laugarvatnsskóla 1951—1967. Átti lengi sæti í sóknarnefnd Laugardælakirkju, var formaður hennar og beitti sér í því starfi fyrir byggingu Selfosskirkju (1952—1956). Átti sæti í framkvæmdastjórn Verslunarráðs Íslands. Yfirskoðunarmaður ríkisreikninga 1964—1967. Skip. 1966 í endurskoðunarnefnd laga um þingsköp Alþingis. Alþm. Árn. 1951—1959, alþm. Suðurl. 1959—1967 (Sjálfstfl.). Vþm. Árn. nóv.—des. 1949, jan.—mars og okt.—nóv. 1951. Forseti Ed. 1959—1967.
Related objects