Friðjón Þórðarson

5.2.1923 - 14.12.2009
Roles
Alþingismaður, Sýslumaður, Hæstaréttarlögmaður
Place
Staður: Ægisbraut 7, Gamli sýslumannsbústaður, 370-Búðardal, Dalabyggð, Búðardalur, Ísland Núverandi sveitarfélag: Dalabyggð, Ísland Sveitarfélag 1950: Laxárdalshreppur Staður: Breiðabólsstaður á Fellsströnd, Breiðabólstaður, 371-Búðardal, Dalabyggð, Fellsströnd, Ísland Sveitarfélag 1950: Fellsstrandarhreppur
More information
Vefbirting: Friðjón Þórðarson. Fæddur 5. febrúar 1923 á Breiðabólstað. Dáinn 14. desember 2006. Stúdentspróf MR 1941. Lögfræðipróf HÍ 1947, héraðsdómslögmaður 1948 og hæstaréttarlögmaður 1991.Hóf störf hjá Ragnari Jónssyni hrl. að loknu prófi. Fulltrúi borgardómara 1947-1948. Fulltrúi og staðgengill lögreglustjórans í Reykjavík 1948-1955. Settur bæjarfógeti á Siglufirði 1951-1952. Sýslumaður í Dalasýslu 1955-1965 og 1991-1993. Sýslumaður í Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu 1965-1975. Stjórnarseta og formennska í fjölda fyrirtækja, stofnanna og nefnda. Í hreppsnefnd Stykkishólmshrepps 1966-1970. Alþingismaður sjálfstæðisflokksins fyrir Dalasýslu 1956-1959 og Vesturlandskjördæmi 1967-1991. Dóms- og kirkjumálaráðherra og samstarfsráðherra um norræn málefni 1980-1983. Ítarlegri skrá neðar. For. Þórður Kristjánsson (1890-1967) bóndi og hreppstjóri og Steinunn Þorgilsdóttir (1892-1984) kennari. Systkini Friðjóns voru Ingibjörg Halldóra (1919-1936), Sigurbjörg Jóhanna (1924-), Sturla (1925-) og Halldór Þorgils (1938). Fyrri kona (1950) Friðjóns var Kristín Sigurðardóttir (1928-1989) húsmóðir. For. Sigurður Lýðsson og Guðrún Bárðardóttir. Börn þeirra eru Sigurður Rúnar (1950), Þórður (1952), Helgi Þorgils (1953), Lýður Árni (1956), Steinunn Kristín (1960). Seinni kona (1992) Friðjóns var Guðlaug Guðmundsdóttir (1936) húsmóðir. For. Guðmundur Halldór Þorláksson og Ingunn Sigríður Tómasdóttir. Lögfræðipróf HÍ 1947. Hdl. 1948. Hrl. 1991. Náms- og kynnisdvöl við aðalstöðvar Sameinuðu þjóðanna í New York sept.-des. 1949 og við State Police Academy í New Haven, Connecticut, Bandaríkjunum febr.-júní 1950. Hóf störf hjá Ragnari Jónssyni hæstaréttarlögmanni að loknu prófi. Settur bæjarfógeti á Akranesi ágústmánuð 1947. Fulltrúi borgardómarans í Reykjavík 1947-1948. Fulltrúi lögreglustjórans í Reykjavík 1948-1949, 1950-1951 og 1952-1955. Oft settur lögreglustjóri í Reykjavík 1948-1955. Settur bæjarfógeti á Siglufirði 1951-1952. Sýslumaður í Dalasýslu 1955-1965 og 1991-1993. Sýslumaður í Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu 1965-1975. Stjórnarformaður Sparisjóðs Dalasýslu 1956-1965. Í bankaráði Búnaðarbanka Íslands 1960-1993, formaður 1969-1972. Í hreppsnefnd Stykkishólmshrepps 1966-1970. Sat á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna 1966, 1985, 1987 og 1990. Fulltrúi Íslands í Þingmannasamtökum Norður-Atlantshafsríkjanna 1967-1974 og 1976, formaður íslensku sendinefndarinnar 1968-1971. Fulltrúi Íslands á þingi Evrópuráðsins 1974. Fulltrúi Íslands á fundum þingmannanefndar EFTA 1975, 1977 og 1988. Í stjórn Sementsverksmiðju ríkisins 1977-1993. Í stjórn Brunabótafélags Íslands frá 1979, formaður 1987, og Vátryggingafélags Íslands síðan 1989. Í Íslandsdeild Norðurlandaráðs 1983-1987 og sat aukaþing ráðsins 1988. Í Vestnorræna þingmannaráðinu 1985 og 1987-1989, formaður. Landskjörinn alþingismaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn 1956-1959, varaþingmaður í Vesturlandskjördæmi mars 1962 og þingmaður í Vesturlandskjördæmi 1967-1991. Dóms- og kirkjumálaráðherra og samstarfsráðherra um norræn málefni 1980-1983. Fyrsti varaforseti Sþ. 1973-1974 og 1978-1979, annar varaforseti Sþ. 1974-1978 og 1979. Reference: Alþingismannatal. Ísl. samtíðarmenn I. Bls. 173., Reference: Halldór Kristinn Kristjánsson o.fl. 1995. Ormsætt V. Bls. 1486.
Related objects