Steingrímur Steinþórsson

12.2.1893 - 14.11.1966
Roles
Búnaðarmálastjóri, Búfræðingur, Ráðherra
Place
Staður: Ásvallagata 60, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Vesturbær, Ísland Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg Sveitarfélag 1950: Reykjavík
More information
Vefbirting: For.: Steinþór Björnsson (f. 21. mars 1860, d. 3. apríl 1926) bóndi þar og k. h. Sigrún Jónsdóttir (f. 6. mars 1870, d. 7. febr. 1929) húsmóðir, dóttir Jóns Sigurðssonar alþm. á Gautlöndum. K. (17. júní 1928) Guðný Theódóra Sigurðardóttir (f. 12. des. 1899, d. 25. des. 1988) húsmóðir. For.: Sigurður Sigurðsson og k. h. Sigríður Guðmundsdóttir. Börn: Steinþór (1929), Hreinn (1930), Sigurður Örn (1932), Sigrún (1936). Dóttir Steingríms og Óskar Jórunnar Árnadóttur: Torfhildur (1931). Búfræðipróf Hvanneyri 1915. Próf frá búnaðarháskólanum í Kaupmannahöfn 1924. Vann á búi foreldra sinna á Litluströnd við Mývatn 1915—1917. Fjármaður á Hvanneyri 1917—1920. Kennari við Bændaskólann á Hvanneyri 1924—1928. Skólastjóri Bændaskólans á Hólum 1928—1935. Búnaðarmálastjóri 1935—1962 nema þann tíma er hann var ráðherra. Nýbýlastjóri 1936—1941. Skip. 14. mars 1950 forsætis- og félagsmálaráðherra, lausn 11. sept. 1953. Skip. 11. sept. 1953 landbúnaðar- og félagsmálaráðherra, fór einnig með kirkju- og orkumál, lausn 27. mars 1956, en gegndi störfum til 24. júlí. Í skipulagsnefnd atvinnumála 1934—1937. Settur forstjóri landbúnaðardeildar atvinnudeildar háskólans 1937—1941. Formaður mþn. í tilraunamálum landbúnaðarins 1938—1939. Í sýningarráði Íslandsdeildar heimssýningarinnar í New York 1938—1940. Í nýbýlastjórn frá 1941 til æviloka. Skip. formaður í tilraunaráði búfjárræktar 1. jan. 1943, í nýbyggingarráði 1944, í nefnd til að endurskoða lög um bændaskóla 1947. Formaður sýningarráðs landbúnaðarsýningar 1947. Formaður Heklunefndar 1947. Í bankaráði Landsbankans 1957—1966. Í Náttúruverndarráði 1956—1966. Formaður orðunefndar 1957—1965.       Alþm. Skagf. 1931—1933, 1937—1942 og 1946—1959 (Framsfl.).  Vþm. Skagf. apríl 1946.  Forsætis- og félagsmálaráðherra 1950— 1953, landbúnaðar- og félagsmálaráðherra 1953—1956.       Forseti Sþ. 1949—1950. 1. varaforseti Nd. 1947—1949.       Ritaði sjálfsævisögu sem kom út 1978—1980.       Ritstjóri: Búnaðarrit (1936—1950 og 1957—1962).
Related objects