Jónas Jónsson
1.5.1885 - 19.07.1968
Roles
Ráðherra, Alþingismaður
Place
Staður: Hávallagata 25, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Vesturbær, Ísland
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Sveitarfélag 1950: Reykjavík
Staður: Hrifla, 641-Húsavík, Þingeyjarsveit, Kaldakinn, Ísland
Sveitarfélag 1950: Ljósavatnshreppur
Other name
Jónas frá Hriflu
More information
Vefbirting:
Jónas Jónsson frá Hriflu fæddist í Hriflu í Bárðardal 1. maí 1885, d. 19. júlí 1968. For.: Jón Kristjánsson (f. 5. ágúst 1841, d. 18. nóv. 1919) bóndi þar og k. h. Rannveig Jónsdóttir (f. 11. júlí 1842, d. 19. júní 1925) húsmóðir. K. (8. apríl 1912) Guðrún Stefánsdóttir (f. 5. okt. 1885, d. 15. jan. 1963) húsmóðir. For.: Stefán Sigurðsson og k. h. Steinunn Jónasdóttir. Dætur: Auður (1913), Gerður (1916).
Gagnfræðapróf Akureyri 1905. Nám í lýðháskólanum í Askov á Jótlandi 1906-1907, í kennaraháskólanum í Kaupmannahöfn 1907-1908. Kynnti sér skólamál í Þýskalandi, Frakklandi og Englandi 1908-1909 með styrk úr landssjóði, dvaldist þá m.a. eitt misseri á Ruskin College í Oxford.
Kennari við unglingaskólann á Ljósavatni 1905-1906. Kennari við Kennaraskólann í Reykjavík 1909-1918. Skólastjóri Samvinnuskólans frá stofnun hans haustið 1919-1927 og 1932-1955. Skip. 28. ágúst 1927 dóms- og kirkjumálaráðherra, lausn 20. apríl 1931, skip. 20. ágúst 1931 dóms- og kirkjumálaráðherra að nýju, lausn 28. maí 1932, en gegndi störfum til 3. júní.
Kosinn 1925 í bankamálanefnd, 1926 í alþingishátíðarnefnd. Í dansk-íslensku ráðgjafarnefndinni 1926-1939. Í Þingvallanefnd 1928-1946. Í menntamálaráði 1934-1946. Tók sæti í bankaráði Landsbankans 1927 og 1936, í orðunefnd 1935-1944. Forseti Þjóðvinafélagsins 1940-1941. Í skipulagsnefnd atvinnumála 1934. Formaður Framsóknarflokksins 1934-1944. Í bæjarstjórn Reykjavíkur 1938-1942. Í skipulagsnefnd bygginga við Lækjargötu 1943.
Landsk. alþm. 1922-1934, alþm. S.-Þing. 1934-1949 (Framsfl.).
Dóms- og kirkjumálaráðherra 1927-1931 og 1931-1932.
Milliþingaforseti Ed. 1932 og 1933.
Afkastamikill rithöfundur, skrifaði bækur, bókarkafla og greinar í blöð og tímarit. Samdi kennslubækur, oft endurprentaðar, og skrifaði greinar um menn og málefni: skólamál, samvinnumál, þjóðfélagsmál o.fl. -
Jónas Kristjánsson annaðist útgáfu bókarinnar: Jónas Jónsson frá Hriflu. Ævi hans og störf (1965). Indriði G. Þorsteinsson skrifaði: Samtöl við Jónas (1977). Guðjón Friðriksson skrifaði ævisögu Jónasar Jónssonar í þremur bindum: Með sverðið í annarri hendi og plóginn í hinni. Dómsmálaráðherrann. Ljónið öskrar (1991-1993).
Ritstjóri: Skinfaxi (1911-1917). Tímarit íslenskra samvinnufélaga (1917-1925). Samvinnan (1926-1928 og 1931-1946). Ófeigur (1944-1956). Landvörn (1946). Landvörn (1948-1953).
Reference:
http://www.althingi.is/cv.php4?nfaerslunr=351 (sótt 27. júlí 2004)
Related objects








