Bjarni Guðbjörnsson

29.11.1912 - 29.01.1999
Roles
Alþingismaður
Place
Staður: Sléttuvegur 17, 103-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Fossvogur, Ísland Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg Sveitarfélag 1950: Reykjavík
More information
Vefbirting: F. í Reykjavík. For.: Guðbjörn Guðbrandsson (f. 9. júlí 1875, d. 26. júlí 1927) bókbandsmeistari þar og k. h. Jensína Jensdóttir (f. 25. mars 1879, d. 21. des. 1930) húsmóðir, föðursystir Ásgeirs Bjarnasonar alþm. K. (1. nóv. 1941) Gunnþórunn Björnsdóttir (f. 14. nóv. 1919) húsmóðir. For.: Björn Kristjánsson alþm. og 2. k. h. Rannveig Gunnarsdóttir. Börn: Björn Ragnar (1943), Þórdís (1948), Gunnar Þór (1957). Gagnfræðapróf Reykjavík 1930. Kennarapróf KÍ 1941. Starfsnám í Privatbanken í Kaupmannahöfn 1946 og Skandinaviska Banken í Stokkhólmi 1946—1947. Bifreiðarstjóri í Reykjavík 1933—1939, strætisvagnsstjóri frá 1936. Starfsmaður Útvegsbankans í Reykjavík 1941— 1950. Útibússtjóri Útvegsbankans á Ísafirði 1950—1973. Útibússtjóri Útvegsbankans í Kópavogi 1974—1975. Bankastjóri Útvegsbankans 1975—1983. Norskur vararæðismaður á Ísafirði 1952—1974. Í bæjarstjórn Ísafjarðar 1955—1970, forseti bæjarstjórnar 1962— 1966. Í stjórn Fiskveiðasjóðs Íslands 1975—1977. Í stjórn Iðnþróunarsjóðs 1979—1980. Í stjórn Þingmannasamtaka Norður-Atlantshafsríkjanna 1971— 1974. Alþm. Vestf. 1967—1974 (Framsfl.). Vþm. Vestf. mars—maí 1960, mars—maí 1966.
Related objects