Martinus Smith
22.10.1811 - 21.12.1884
Roles
Kaupmaður, Ræðismaður
Place
Staður: Hótel Alexandra, Hafnarstræti 16, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Kvosin, Ísland
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Sveitarfélag 1950: Reykjavík
Other name
Martein
More information
Vefbirting:
Maki: Ragnheiður Bogadóttir Smith, f. 07.06.1814, d. 23.01.1883.
Peter Duus og Ásta Tómasdóttir kaupa verslunina í Keflavík 3. júní 1848 af Martin Smith sem hafði rekið þar verslun um árabil.
Martin Smith, konsúll og kaupmaður, kaupir Amtmannsstíg 1 árið 1858. Þá var Jórunn ekki flutt úr húsinu og ætlaði sér ekki að fara þaðan. Erfiðlega gekk að fá hana í burtu og endaði með því að Martin Smith þurfti að beita hörðu og biðja um útburð á Jórunni. Við útburðinn urðu harðar sviptingar og frúin tók hressilega á móti. Enduðu ósköpin á því að fyrrverandi land- og bæjarfógetafrú var flutt í böndum vestur í Sauðagerði. Sagt er að eftir dauða sinn hafi Jórunn stundum gert vart við sig í húsinu.
Martin Smith kaupmaður og eigandi Hótels Alexandra, en hann er tengdasonur Boga kaupmanns Benediktssonar og svili Jóns Péturssonar.
Árið 1879 eignaðist Martin Smith, konsúll og kaupmaður, húsið að Hafnarstræti 16, Reykjavik. Hann gerði á því miklar endurbætur og árið 1880 lét hann hækka það um eina hæð þannig að það varð tvílyft með lágu risi og kvisti í norður. Martin Smith kom á stofn veitinga- og hótelrekstri í húsinu undir nafninu Hótel Alexandra (eftir dóttur Danakonungs).
Martínus Smith,
f. 22. okt. 1811, Sorterup sókn, Sorøe Amt.
d. 21. des. 1884, í Kaupmannahöfn.
Kaupmaður og konsúll í Reykjavík. Höndlunarfaktor í Stykkishólmi 1840, kaupmaður í Smith höndlunarhúsi 1845 (skrifaður Hillartinus), þar enn 1855, Kaupmaður og konsúll í Ingólfsbrekku 5 1860, Ingólfsbrekku 10 1870, nefndur Marteinn í MT1880, þá kaupmaður og hollenskur konsúll.
Hann átti bróður að nafni Joachim Becer Smith f. 1809, og kona hans var Marie Antonette Smith, (f. Kemp) og er hún sögð fædd 1826 á Íslandi. OG nú að aðalatriðinu: Eru foreldrar hennar Ludvig C.F. Kemp (1784-1837) og k.h. Helga Sveinsdóttir (1800-1827) ?
Reference:
Aðfangabók Þjóðminjasafnsins, Mannamyndasafn nr: 25505-28521. (1969-1974)
https://ferlir.is/duus-i-keflavik/
https://www.mbl.is/greinasafn/grein/683539/
https://www.mbl.is/greinasafn/grein/808272/
https://www.mbl.is/greinasafn/grein/650488/
Related objects

