Axel Helgason
12.4.1913 - 17.7.1959
Roles
Lögreglumaður, Forstjóri
Place
Staður: Kársnesbraut 19, 200-Kópavogi, Kópavogsbær
Núverandi sveitarfélag: Kópavogsbær, Kópavogsbær
Sveitarfélag 1950: Kópavogshreppur
Other name
Lárus Axel Helgason
More information
Vefbirting:
Var í Víkurkauptúni, Víkursókn, V-Skaft. 1930. Löggæslumaður í Reykjavík og síðar forstjóri. Drukknaði.
F. í Vík í Mýrdal. Fluttist til Reykjavíkur 1937. Lögregluþjónn og síðar forstjóri. Hann drukknaði í Heiðarvatni.
Faðir: Helgi Dagbjartsson, f. 01.08.1877, d. 06.03.1941
Maki: Sonja Björg Helgason, f. 16.11.1918, d. 13.07.2010, Bakkaseli 15, Reykjavík.
Axel Helgason var einn brautryðjendanna hjá lögreglunni á fyrri hluta síðustu aldar eða svo. Hann var í götulögreglunni á stríðsárunum þegar Ísland var hernumið af Bretum, en undir stríðslok fór Axel til New York og kynnti sér tæknirannsóknir, ekki síst fingrafarafræði. Seinna fór hann í námsferð til Scotland Yard, en Axel stofnaði fingrafaradeild rannsóknarlögreglunnar og er fyrir mörgum goðsögn í þeim fræðum.
Axel hætti í lögreglunni 1957 og stofnaði Nesti sama ár. Nesti rak bensín- og greiðasölu á tveimur stöðum í Reykjavík. Önnur var við Suðurlandsbraut, hjá Elliðaám, og hin við Hafnarfjarðarveg í Fossvogi. Þarna voru bílalúgur, en þessi bensín- og söluturnahús þóttu alveg einstaklega glæsileg á sínum tíma tíma, en þau hannaði Manfreð Vilhjálmsson arkitekt. Axel, sem var mjög listfengur og var einn stofnenda Myndlistarskólans í Reykjavík, lést af slysförum í Heiðarvatni í Mýrdal langt fyrir aldur fram árið 1959, þá aðeins 46 ára.
Reference:
Vestur Skaftfellingar I, 52.
https://www.islendingabok.is/search
https://www.islendingabok.is/compare?indId=15844204
https://www.logreglan.is/breyttir-timar-axel-helgason/
Related objects







