Jón Sigurðsson

17.6.1811 - 7.12.1879
Roles
Forseti, Skjalavörður, Alþingismaður
Place
Staður: Jónshús, Øster Voldgade 12, Kaupmannahöfn Núverandi sveitarfélag: Kaupmannahöfn, Kaupmannahöfn Staður: Hrafnseyri, Rafnseyri, 465-Bíldudal, Ísafjarðarbær, Arnarfjörður, Ísland Sveitarfélag 1950: Auðkúluhreppur
More information
Vefbirting: Kallaður forseti.  Fæddur að Hrafnseyri við Arnarfjörð, dáinn í Kaupmannahöfn. Foreldrar:  Sigurður Jónsson, prestur á Hrafnseyri (f. 2. jan. 1777, d. 31. okt. 1855), og Þórdís Jónsdóttir (f. 1772, d. 28. ágúst 1862). Útskrifaður 1829 úr heimaskóla hjá séra Gunnlagu Oddssyni.  Skráður í stúdentatölu Hafnarháskóla 1833-1834, lagði stund á málfræði og sögu, síðar stjórnfræði og hagfræði, en lauk ekki prófi.  Við verslunarstörf í Reykjavík 1829-1830.  Skrifari hjá Steingrími biskupi Jónssyni í Laugarnesi 1830-1833.  Varð 1835 styrkþegi Árnasafns, skrifari í stjórnarnefnd þess frá 1848 til æviloka.  Vann samtímis hjá Bókmenntafélaginu, vísindafélagi Dana (Det kgl. danske Videnskabernes Selskab), fornfræðafélaginu (Det kgl. nordiske Oldskriftselskab), var skjalavörður þess félags 1845-1849, er staðan var lögð niður, naut síðan biðlauna um hríð og styrks úr sjóði J. L. Smidt, uns hann fékk fastan styrk úr ríkissjóði Dana til þess að gefa út fornbréfasafn.  Stofnaði Ný félagsrit og gaf út 1841-1873.  Forseti Kaupmannahafnardeildar Bókmenntafélagsins frá 1851 til æviloka, hlaut af því forsetanafnið.  Forseti Þjóðvinafélagsins frá stofnun þess 1871 til æviloka.  Átti sæti í fornritanefnd fornfræðafélagsins frá 1847 til æviloka, skrifari í stjórn þess 1863-1864.  Erindreki í fjárkláðamálinu 1859.  Var í fjárhagsnefnd Íslendinga og Dana 1861-1862 og í póstmálanefnd 1871.  Hafði laun frá Þjóðvinafélaginu 1873-1874, en síðan heiðurslaun frá Alþingi.  Átti heima í Kaupmannahöfn alla tíð frá 1833. Alþm. Ísf. 1845-1879.  Þfm. 1851.  Sat ekki þing 1855, 1861, 1863 og sagði af sér fyrir þing 1879.  Forseti Alþ. 1849, 1853, 1857 og 1865-1873, Sþ. 1875-1977, Nd. 1875-1877. Maki (4. sept. 1845):  Ingibjörg Einarsdóttir, f. 9. okt. 1804, d. 16. des. 1879 (dóttir Einars kaupmanns í Reykjavík, Jónssonar, og Ingveldar Jafetsdóttur). Reference: Alþingismannatal 1845-1975, bls.239.  Útg.:  Skrifstofa Alþingis, Reykjavík, 1978.
Related objects