Skúli Jónsson Thoroddsen

6.1.1859 - 21.5.1916
Roles
Alþingismaður, Kaupmaður, Ritstjóri, Bóndi, Sýslumaður
Place
Staður: Vonarstræti 12, 101-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Kvosin, Ísland Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg Sveitarfélag 1950: Reykjavík
More information
Vefbirting: Fæddur í Haga á Barðaströnd. Foreldrar: Jón Thoroddsen sýslumaður í Haga (f. 05.10.1818, d. 08.03.1868) og Kristín Ólína Þorvaldsdóttir (f. 24.06.1833, d. 27.11.1879). Maki (11.10.1884): Theodóra Friðrika Guðmundsdóttir, f. 01.07.1863, d. 23. 02.1954. (Foreldrar hennar: Guðmundur Einarsson alþingismaður og Katrín Ólafsdóttir). Börn: Unnur, Guðmundur, Þorvaldur, Skúli, Þorvaldur, Kristín Ólína, Katrín, Jón, Ragnhildur, Bolli, Sigurður, Sverrir, María Kristín. Stúdent 1879 Reykjavík. Lögfræðipróf 1884 Kaupmannahöfn. Settur málaflutningsmaður við landsyfirdóminn 1. ágúst 1884. Sýslumaður í Ísafjarðarsýslu og bæjarfógeti á Ísafirði 1884-1892. Vikið frá 15. ágúst 1892. Lausn með eftirlaunum 31. maí 1895. Átti heima á Ísafirði til 1901. Rak þar verslun 1895-1915. Ritstjóri og bóndi á Bessastöðum á Álftanesi 1901-1908. Fluttist til Reykjavíkur og átti þar heima síðan. Stjórnaði um hríð kaupfélagi á Ísafirði en það annaðist m.a. saltfisksölu til Miðjarðarhafslanda. Skip. í millilandanefndina 1907. Yfirskoðunarmaður landsreikninga 1908-1913. Í mþn. í launamálum 1914. Í velferðarnefnd 1915. Alþm. Eyf. 1890-1892, Ísf. 1892-1902, N-Ísf. 1903-1915. Forseti Sþ. 1909-1911. Reference: Aðfangabók Þjóðminjasafns Íslands. Nr. 21806 - 25504. Alþingismannatal 1845-1975, bls. 374. Skrifstofa Alþingis gaf út, Reykjavík, 1978. Aðfangabók Þjóðminjasafns Íslands. Nr. 28522 - 31552.
Related objects