Bjarni Guðnason
3.9.1928 - 27.10.2023
Roles
Prófessor
Place
Staður: Heiðargerði 46, 108-Reykjavík, Reykjavíkurborg
Núverandi sveitarfélag: Reykjavíkurborg
Sveitarfélag 1950: Reykjavík
More information
Vefbirting:
For.: Guðni Jónsson (f. 22. júlí 1901, d. 4. mars 1974) dr. phil., prófessor og 1. k. h. Jónína Margrét Pálsdóttir (f. 4. apríl 1906, d. 2. okt. 1936) húsmóðir.
K. (6. apríl 1955) Anna Guðrún Tryggvadóttir (f. 14. júní 1927) húsmóðir. For.: Tryggvi Þórhallsson alþm. og ráðherra og k. h. Anna Klemensdóttir, dóttir Klemensar Jónssonar alþm. og ráðherra. Börn: Tryggvi (1955), Gerður (1958), Auður (1961), Unnur (1963).
Stúdentspróf MR 1948. Nám í ensku við háskólann í Lundúnum 1948—1949. Meistarapróf í íslenskum fræðum HÍ 1956. Dr. phil. Háskóla Íslands 1963.
Stundakennari við skóla í Reykjavík 1948—1955. Sendikennari í íslenskri tungu og bókmenntum við háskólann í Uppsölum 1956—1962. Kennari við Menntaskólann í Reykjavík 1962—1963, stundakennari 1964—1966. Prófessor í íslenskri bókmenntasögu við Háskóla Íslands 1963-1998.
Fyrsti formaður Félags háskólakennara 1969—1970. Í Norðurlandaráði 1971— 1972. Sat þing Alþjóðaþingmannasambandsins 1971. Formaður Frjálslynda flokksins 1973.
Landsk. alþm. (Reykv.) 1971— 1974 (Frjálsv., Ufl.).
Landsk. vþm. (Austurl.) apríl 1979, vþm. Reykv. maí 1984 og mars 1986 (Alþfl.).
2. varaforseti Nd. 1971—1974.
Hefur ritað bækur og greinar um íslenskar fornbókmenntir og samið skáldsögu. Doktorsrit hans var um Skjöldungasögu. Gaf út Danakonunga sögur með rækilegum formála á vegum Hins íslenska fornritafélags.
Reference:
Aðfangabók Þjóðminjasafns Íslands. Nr. 28522 - 31552.
Related objects
