Steinþór Gestsson

31.5.1913 - 04.09.2005
Roles
Bóndi, Alþingismaður
Place
Staður: Hæll 1, 801-Selfossi, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Eystrihreppur, Ísland Núverandi sveitarfélag: Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Skeiða- og Gnúpverjahreppur Sveitarfélag 1950: Gnúpverjahreppur
More information
Vefbirting: Hæll í Gnúpverjahrepp, sama ætt búið þar frá 1740. F. á Hæli í Gnúpverjahreppi 31. maí 1913, d. 4. sept. 2005. For.: Gestur Einarsson (f. 2. júní 1880, d. 23. nóv. 1918) bóndi þar, bróðir Eiríks Einarssonar alþm. og móðurbróðir Einars Ingimundarsonar alþm., og k. h. Margrét Gísladóttir (f. 30. sept. 1885, d. 7. júní 1969) húsmóðir og bóndi á Hæli eftir eiginmann sinn. K. (12. júní 1937) Steinunn Matthíasdóttir (f. 8. okt. 1912, d. 6. febr. 1990) húsmóðir, föðursystir Ólafs Arnar Haraldssonar alþm. For.: Matthías Jónsson og k. h. Jóhanna Bjarnadóttir. Börn: Jóhanna (1938), Gestur (1941), Aðalsteinn (1943), Margrét (1946), Sigurður (1954). Gagnfræðapróf MA 1933. Bóndi á Hæli 1937—1974. Í hreppsnefnd Gnúpverjahrepps 1938—1974, oddviti 1946—1974. Í sýslunefnd 1946—1970 og 1974—1978. Endurskoðandi reikninga sveitarsjóða í Árnessýslu 1950—1970. Formaður Landssambands hestamannafélaga 1951—1963. Formaður vélanefndar ríkisins 1963—1972. Í Þingvallanefnd 1970—1979 og 1980— 1984. Skip. 1971 í sjúkrasamlaganefnd, 1975 í ábúðarlaganefnd og áburðarverksmiðjunefnd. Formaður byggingarnefndar þjóðveldisbæjar 1974. Í stjórn Stóðhestastöðvar ríkisins 1979—1995. Í stjórn Búnaðarfélags Íslands 1979— 1991. Í stjórn Framkvæmdastofnunar 1980—1983. Í stjórn Áburðarverksmiðju ríkisins 1981—1986, formaður frá 1983. Alþm. Suðurl. 1967—1978 og 1979—1983 (Sjálfstfl.). Vþm. Suðurl. apríl 1964, nóv. 1978 og febr.—mars 1979, landsk. vþm. (Suðurl.) nóv.—des. 1978. 2. varaforseti Sþ. 1980—1983. Hefur skrifað rit og greinar um sunnlenskar byggðir, landssamtök hestamanna og MA-kvartettinn o. fl. Ritstjóri: Suðurland (1979).
Related objects