Einar Breiðfjörð Guðmundsson
5.10.1926 - 12.3.2010
Roles
Húsasmíðameistari, Húsasmiður, Bóndi
Place
Staður: Bjölluhóll, Snæfellsbær, Hellissandur, Ísland
Staður: Bjarneyjar, Reykhólahreppur
Staður: Múli, 531-Hvammstanga, Húnaþing vestra, Línakradalur, Ísland
Staður: Birkihlíð, 531-Hvammstanga, Húnaþing vestra, Víðidalur, Ísland
Staður: Staðarfell, 371-Búðardal, Dalabyggð, Fellsströnd, Ísland
Staður: Árskógar 6, 109-Reykjavík, Reykjavíkurborg, Seljahverfi, Ísland
More information
Vefbirting: Einar Breiðfjörð Guðmundsson. Fæddur 5. október 1926 á Hellissandi. Dáinn 12. mars 2010 á Landspítalanum í Fossvogi. Ólst upp á Bjölluhóli á Hellissandi 1926-1932, fósturbarn í Bjarneyjum 1932-1940. Vinnumaður í Efri-Langey 1940-1943. Vinnumaður á Staðarfelli á Fellsströnd í nokkur ár frá 1943. Reykholtsskóli. Lærði húsasmíði við Iðnskólann í Reykjavík og varð húsasmíðameistari 1953. Húsasmiður í Reykjavík 1951-1959. Húsasmíðameistari og bóndi í Múla í Línakradal 1959-1969. Húsasmíðameistari í Birkihlíð í Víðidal 1969-1974, á Akureyri 1974-1981 og í Reykjavík frá 1981. For. Guðmundur Einarsson (1899-1932) sjómaður og Kristín Jónasdóttir (1903-1971) húsmóðir á Bjölluhóli á Hellissandi. Systkini hans voru Jónas Breiðfjörð (1925-1976), Fjóla (1929-1998), Guðmundur Kristinn (1932-1946). Hálfsystir hans sammæðra var Guðbjörg Benjamínsdóttir (1935). Fósturforeldrar hans voru Valdimar Stefánsson og Gunnlaug Einarsdóttir föðursystir hans í Bjarneyjum. Kona Einars (1951) var Aðalheiður Guðfinna Magnúsdóttir (1931). Börn þeirra eru Magnús Breiðfjörð (1949), Sesselja (1952), Guðmundur (1954), Gunnlaugur Valdimar (1956), Guðrún Bryndís (1960), Lilja Rós (1968) og Kristín Helga Björk (1969).
Reference: Minning - Einar Breiðfjörð Guðmundsson. Morgunblaðið 19.3.2010. Bls. 39-40.
Related objects
