Guðbjörg María Magnúsdóttir

05.12.1922 - 11.04.2008
Roles
Húsmóðir
Place
Staður: Eyrarvegur 8, 425-Flateyri, Ísafjarðarbær, Flateyri, Ísland
More information
Vefbirting: Guðbjörg María Magnúsdóttir (Mæja Magg). Fædd 5. desember 1922 á Flateyri. Dáin 11. apríl 2008 á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði. Húsmæðraskólinn á Staðarfelli 1945-1946. Vann í mötuneyti Síldarverksmiðjunnar í Djúpuvík sumrin 1947 og 1948 Sjúkrahúss Patreksfjarðar sumarið 1949. María annaðist fósturforeldra sína á heimili sínu uns þau létust. Virk í Kvenfélaginu Brynju á Flateyri Flutti til Reykjavíkur 1985 og aftur til Flateyrar á dvalarheimilið Sólborg 2000. For. Magnús Jónsson (1886-1968) skipstjóri og Bjarney Steinunn Einarsdóttir (1893-1927). Systkini hennar eru Sigríður (1911-1995), Svava (1913-1965), Gíslína (1915-1994), Einar (1917-1971), Kristján J. (1918-1949, Hrafnhildur (1920-2007), Guðbjörg María (1921-1921), Haraldur (1924) og Bjartmar (1925-1982). Fósturforeldrar Maríu voru Jóhannes Eugen Guðmundsson (1870-1960) og Valgerður Margrét Guðbjartsdóttir (1877-1965) í Jóhannesarhúsi á Flateyri. Fóstursystkini hennar voru Sigríður (1902-1995), Eiríkur (1904-1926), Guðmundur V. (1905-2000) Jóhannesarbörn og Ragnheiður Friðriksdóttir (1916-2004). Barnsfaðir Maríu var Ólafur Haukur Ólafsson (1930-1989) læknir. Synir þeirra eru Valgeir Jóhannes (1959) og Gunnar Magnús (1959). Reference: Einar Kristjánsson og Steinunn Þorgilsdóttir. 1967. Staðarfellsskóli 40 ára. Bls. 27-28. Minning – Guðbjörg María Magnúsdóttir. Morgunblaðið 19.4.2008. Bls. 35.
Related objects