Jón Þórðarson

2.6.1911 - 24.09.1995
Roles
Bóndi, Sjómaður, Vinnumaður
Place
Staður: Hallsteinsnes, 381-Reykhólahreppi, Reykhólahreppur, Gufudalssveit, Ísland Staður: Hjallar, 381-Reykhólahreppur, Reykhólahreppur, Gufudalssveit, Ísland Staður: Árbær, 381-Reykhólahreppi, Reykhólahreppur, Reykhólasveit, Ísland Staður: Árbær, 381-Reykhólahreppi, Reykhólahreppur, Reykhólasveit, Ísland
More information
Vefbirting: Jón Þórðarson. Fæddur 2. júní 1911 á Hjöllum í Þorskafirði. Dáinn 24. september 1995 í Árbæ. Flutti með foreldrum sínum frá Hjöllum í Gröf og Hallsteinsnes. Var í Hvallátrum á vetrum frá 10 ára aldri til tvítugs. Vetrarvertíðir í Grindavík frá tvítugu. Var í siglingum á stríðsárunum. Byrjaði búskap á hálfri Staðarjörðinni 1944 og reistu síðan nýbýlið Árbæ vestan Staðarár 1949. For. Þórður Jónsson (1867-1941) bóndi og Ingibjörg Pálmadóttir (1883-1966) húsfreyja á Hjöllum, í Gröf, á Hallsteinsnesi og í Hlíð. Systkini hans voru Arnfinnur (1903-1986), Valgerður (1904-1987), Sigríður (1905-1996), Ari Arnalds (1916-2002), Gunnar Gísli (1918-2005), Halldóra (1924-2022) og Gísli (1927-2019). Barnsmóðir Jóns var Ragnheiður Guðrún Sveinsdóttir (1917-1947). Dóttir þeirra var Björg Bergmann (1937-1963). Kona Jóns (1944) var Elísabet Ingibjörg Guðmundsdóttir (1912-1998) frá Kinnarstöðum. Börn þeirra eru Guðlaug (1946), Þórður Magnús (1947) og Valdimar Ólafur (1950). Reference: Hjalla meður grænir. 2014. Bls. 279-280. Minning - Jón Þórðarson. Tíminn 7.10.1995. Bls. 18
Related objects