Hálfdán Guðjónsson
23.5.1863 - 7.3.1937
Roles
Vígslubiskup
Place
Staður: Hólar í Hjaltadal, 551-Sauðárkróki, Skagafjörður, Hjaltadalur, Ísland
Núverandi sveitarfélag: Skagafjörður, Skagafjörður
Sveitarfélag 1950: Hólahreppur
More information
Vefbirting:
Foreldrar: Guðjón Hálfdanarson, prestur í Flatey á Breiðafirði og víðar, og Sigríður Stefánsdóttur Stephensen.
Maki: Herdís Pétursdóttir, f. 04.12.1871, d. 25.01.1928.
Börn: Helgi Hálfdánarson (1912 ) lyfjafræðingur og kennari sem þekktur er fyrir ljóða og leikritaþýðingar sínar og Sigríður.
Störf: Prófastur í Húnavatnsprófastsdæmi frá 1907, Skagafjarðarprófastsdæmi 1919. Aukaþjónusta í Vesturhópshólasókn 1902-1903. Skipaður vígslubiskup í Hólabiskupsdæmi 1928. (Goðdalir 1886, Breiðabólstaður í Vesturhópi 1893, Reynistaðarklaustursprestakall 1914).
Var 1. alþingismaður Húnvetninga 1909-1911. Varamaður í Landsdómi. Sýslunefndarmaður í Húnavatnssýslu 1909-1910. Í stjórn Sparisjóðs Sauðárkróks 1914-1934. Varaformaður Félags presta í hinu forna Hólastifti 1904-1910, formaður 1928 til dauðadags 1937.
Reference:
Guðfræðingatal 1847-1976. Björn Magnússon. Reykjavík 1976, bls. 162-163.
Related objects



