Leita



Vinsamlega sýnið biðlund

Richard Hamilton. Gjöf til Listasafns Íslands.

Vefsýning
Sýningaraðilar:
Listasafn Íslands

Sýningarstjóri:
Dagný Heiðdal

Birt á vef:
28.10.2024

Árið 2024 bárust Listasafni Íslands átta grafíkverk eftir hinn þekkta, breska listamann, Richard Hamilton (1922—2011). Verkin eru gjöf frá ekkju hans, myndlistarmanninum Ritu Donagh (1939—). Richard Hamilton var einn af frumkvöðlum popplistarinnar og samklipp hans frá 1956  Just what is it that makes today's homes so different, so appealing? eitt af þekktustu poppverkum listasögunnar.

Grafíkverkin átta tilheyra flokki verka sem Hamilton vann á tímabilinu 1948 til 1998 sem myndlýsingu við eitt af stórvirkjum heimsbókmenntanna, Ulysses (Ódysseif) eftir Írann James Joyce (1882-1941). Hamilton var um áratuga skeið gagntekinn af þessari skáldsögu sem segir frá einum degi (16. júní 1904) í lífi þriggja Dyflinnarbúa, þeirra Leopold Bloom, Molly Bloom og Stephen Dedalus.

Myndabálkurinn kom fyrir sjónir almennings á alþjóðlegri grafíksýningu í Ljúblíana árið 2001 ogvoru þar sýnd yfir 110 verk á pappír, allt frá skissum og vatnslitamyndum til sería af grafíkverkum og tölvugrafíkverka. Vann Hamilton myndlýsingarnar í margs konar miðla og er hver mynd í mörgum útgáfum og leitaðist hann þannig við að endurspegla tilraunakennda frásagnartækni James Joyce.

Richard Hamilton tengist Íslandi í gegnum vin sinn Dieter Roth (1930—1998) sem hann kynntist árið 1961, þegar Dieter bjó á Íslandi. Frá þeim tíma voru þeir tveir góðir vinir og unnu saman að ýmsum framsæknum verkum. Samvinna þeirra birtist meðal annars í bókinni Collaborations of Ch. Rotham sem kom út árið 1977 og er í safneign Listasafns Íslands (LÍ 9021).

Frá því seint á áttunda áratugnum kannaði Hamilton prentmyndtæknina ítarlega og vann oft með flóknar samsetningar mismunandi djúpþrykksaðferða. Grafíkverkin sem Rita Donagh færði safninu eru frá árunum 1981 til 1998 og eru sjö verk blanda af aðferðum, til dæmis æting, ristuþrykk og akvatinta unnin á mismunandi grunn og þrykkt ýmist með svörtu bleki eða í lit. Sjö elstu verkin eru gefin út af  Waddington Graphics í  London en yngsta verkið er tölvuunnið bleksprautuprent útfgefið af listamanninum sjálfum.