Leita



Vinsamlega sýnið biðlund
Lýsingu vantar

Meðganga og mæðravernd - Meðganga, fæðingar og fyrstu mánuðir barnsins

ÞMS
Spurningaskrá 2025-2

Spurningaskrá 143. Meðganga, fæðingar og fyrstu mánuðir barnsins
143a - Meðganga og mæðravernd

Þjóðminjasafn Íslands safnar nú upplýsingum um meðgöngu, fæðingar og fyrstu mánuði barnsins. Sambærileg spurningaskrá var send út frá safninu árið 1963 en ljóst er að hefðir og verklag tengt meðgöngu og barneignum hafa breyst á undanförnum 60 árum.

Viljir þú deila með okkur viðhorfum þínum, minningum og reynslu værum við afar þakklát. Svörin mega gjarnan vera lýsandi og ítarleg, við viljum fá sem mestar upplýsingar um efnið. Þú mátt endilega taka ýmis dæmi af þinni reynslu. Þú getur einfaldlega sleppt þeim spurningum sem höfða ekki til þín og einbeitt þér að hinum. Öll svör bæta við þekkingu á þessu sviði

Ekki er sérstaklega verið að safna tölulegum upplýsingum, og því er ekki spurt um fjölda barna, aldur né nákvæmt fæðingarár. Fólk ræður sjálft hvort það svarar út frá einni ákveðinni meðgöngu, eða út frá mörgum. Velkomið er að skrifa um fleiri en eitt barn í hverju svari.

Athugaðu að þú getur alltaf dregið svör þín til baka með því að hafa samband við þjóðháttasafn Þjóðminjasafnsins í gegnum netfangið thjodminjasafn@thjodminjasafn.is eða í síma 5302200.

Með kærri þökk fyrir þitt framlag til þessa samfélagslega mikilvæga verkefnis,

Helga Vollertsen, sérfræðingur við Þjóðminjasafn Íslands
Eva Þórdís Ebenezerdóttir, þjóðfræðingur
Sigulaug Dagsdóttir, þjóðfræðingur

Ef einhverjar spurningar vakna, vinsamlegast hafið samband við Helgu Vollertsen í síma 5302276 eða á netfangið helga.vollertsen@thjodminjasafn.is

Þú getur valið á milli þess að svara með nafni eða nafnlaust. Áður en þú svarar sjálfri spurningaskránni biðjum við þig að svara nokkrum bakgrunnsspurningum (en svörin við þeim spurningum verða ópersónugreinanleg). Mikilvægt er að þú kynnir þér skilmálana hér að neðan áður en þú hefur svörun. Eftir að þú hefur fyllt í reitina smellir þú á hnappinn „hefja svörun“. Athugaðu að svarglugginn stækkar sjálfkrafa eftir því sem þú skrifar meira í hann; upphafleg stærð gluggans hefur ekkert að gera með hvað svarið á að vera langt – því fleiri lýsingar, frásagnir, tilfinningar og smáatriði, þeim mun betur gagnast svarið.

Ekki er hægt að vista svörin en mögulegt er að fara frá spurningaskránni og koma að henni aftur síðar ef glugginn er opinn og ekki slökkt á tölvunni eða vafranum. Þó er mælt með að skrifa svörin fyrst í ritvinnsluforrit og líma þau svo inn í svargluggana til að tryggja að enginn texti tapist. Þegar þú hefur lokið við að svara velur þú hnappinn „lokið“ og fara svör þín þá beint inn í þjóðháttasafnið.