Leita



Vinsamlega sýnið biðlund
Lýsingu vantar

Norræna félagið og norrænt samstarf

ÞMS
Spurningaskrá 2022-5
Hlaða öllum svörum niður í PDF

Norræna félagið og norrænt samstarf

Spurningaskrá 134

Kæri þátttakandi

 

Í tilefni af 100 ára afmæli Norræna félagsins leitar félagið í samstarfi við Þjóðminjasafn Íslands nú til heimildamanna til að safna upplýsingum um viðhorf almennings til Norðurlandanna og norræns samstarfs.

 

Við leitum til þeirra sem hafa reynslu af norrænu samstarfi í einni eða annarri mynd, hvort heldur sem er gegnum nám, í starfi, félagsstarfi eða vegna fjölskyldusögu.

Svörin mega gjarnan vera lýsandi og ítarleg, við viljum fá sem mestar upplýsingar um efnið. Þú mátt endilega taka ýmis konar dæmi af þinni reynslu. Það er mjög gagnlegt fyrir rannsóknina að fá lýsingar og frásagnir frá þeim sem svara. Þú getur einfaldlega sleppt þeim spurningum sem höfða ekki til þín og einbeitt þér að hinum.

 

Með kærri þökk fyrir þitt framlag til þessa samfélagslega mikilvæga verkefnis,

Hrannar B. Arnarsson, formaður Norræna félagsins

Ragnheiður Helga Þórarinsdóttir, formaður afmælisnefndar Norræna félagsins

Ásdís Eva Hannesdóttir, framkvæmdarstjóri Norræna félagsins

Helga Vollertsen, sérfræðingur við Þjóðminjasafn Íslands

 

Ef einhverjar spurningar vakna, vinsamlegast hafið samband við Helgu Vollertsen í síma 5302276 eða á netfangið helga.vollertsen@thjodminjasafn.is