Leita



Vinsamlega sýnið biðlund
Lýsingu vantar

Jarðgerð/moltugerð lífræns úrgangs

ÞMS
Spurningaskrá 2022-3
Hlaða öllum svörum niður í PDF

 

ÞMS
Spurningaskrá 2022-3

Jarðgerð/moltugerð lífræns úrgangs

Þjóðminjasafn Íslands

Spurningaskrá 132

Kæri þátttakandi

Fjöldi fólks hefur á undanförnum árum byrjað að umbreyta lífrænum úrgangi í næringarríkan jarðveg eða moltu með ýmsum aðferðum. Þessari spurningaskrá er ætlað að safna upplýsingum um þessa moltugerð eða jarðgerð lífræns úrgangs á Íslandi. Við leitum til þeirra sem eru að jarðgera lífrænan úrgang til að draga lærdóm af reynslu þeirra. Hvað fékk þig til að fara að jarðgera lífrænan úrgang, hvernig hefur það reynst þér og hvaða áhrif hefur það haft? Hvaða viðhorf liggja að baki? Hverjar eru helstu áskoranirnar? Svörin mega gjarnan vera lýsandi og ítarleg, við viljum fá sem mestar upplýsingar um efnið. Þú mátt endilega taka ýmis konar dæmi af þinni reynslu. Það er mjög gagnlegt fyrir rannsóknina að fá lýsingar og frásagnir frá þeim sem svara. Þú getur einfaldlega sleppt þeim spurningum sem höfða ekki til þín og einbeitt þér að hinum.

Spurningaskráin er hluti af rannsóknarverkefninu „Samlífi manna og örvera í daglega lífinu“. Áhuginn á samlífi manna og örvera hefur vaxið hratt alla 21. öldina en verkefnið beinir sjónum að því hvernig þetta samlífi mótast í daglegum athöfnum fyrr og nú, með áherslu á jarðgerð og matargerð. Verkefnið leiðir saman vísindafólk af ólíkum sviðum til að rannsaka hvernig menningarlegt, líffræðilegt og félagslegt samhengi mótar lifandi “kúltúr”. Markmiðið er að móta nýtt sjónarhorn á samspil manneskja og örvera og vísa veginn í átt að sjálfbærari framtíð.

Spurningakaflar

Í spurningaskránni eru fimm spurningakaflar.

  1. Lýsing á jarðgerð og aðstöðu
  2. Ástæður, viðhorf og upplifun
  3. Samlífi manna og örvera
  4. Upplýsingaöflun og miðlun
  5. Að lokum
Hægt er að svara spurningunum eins ítarlega og óskað er. Athugið að svargluggarnir stækka í samræmi við þann texta sem skrifaður er. Hér er hægt að hlaða niður spurningunum í word-skjali. Mögulegt er að svara spurningunum beint í skjalið og annað hvort klippa inn í spurningaformið hér í Sarpi, eða senda beint á netfangið helga.vollertsen@thjodminjasafn.is

 

Þrír heppnir þátttakendur sem skila fullnægjandi svörum við spurningaskránni fyrir 30. apríl 2022 verða dregnir út og fá tvær Bokashi tunnur og örveruklíð frá Jarðgerðarfélaginu.


Með kærri þökk fyrir þitt framlag til þessa samfélagslega mikilvæga verkefnis,

Helga Ögmundardóttir, lektor í mannfræði við Háskóla Íslands

Valdimar Tr. Hafstein, prófessor í þjóðfræði við Háskóla Íslands

Eysteinn Ari Bragason, þjóðfræðingur

Helga Vollertsen, sérfræðingur við Þjóðminjasafn Íslands

Ef einhverjar spurningar vakna, vinsamlegast hafið samband við Helgu Vollertsen í síma 5302276 eða á netfangið helga.vollertsen@thjodminjasafn.is