Leita



Vinsamlega sýnið biðlund
Ljósmyndari/Höf.Oline Marie Thamsen Lefolii 1860-1909
MyndefniHestur, Karlmaður, Stúlka
Nafn/Nöfn á myndGuðmunda Jóna Nielsen 1885-1936, Inger Nielsen 1884-, Mads Peter Nielsen 1844-1931
Ártal1890

ByggðaheitiEyrarbakki
Sveitarfélag 1950Eyrarbakkahreppur
Núv. sveitarfélagSveitarfélagið Árborg
SýslaÁrnessýsla
LandÍsland

Nánari upplýsingar

NúmerBÁM/1958-57
AðalskráMynd
UndirskráAlmennt myndasafn
GerðSvart/hvít pósitíf
GefandiEugenía I. Nielsen 1916-2004

Lýsing

Mynd úr safni Oline Lefolii kaupmannsfrúar á Eyrarbakka. Peter Nielsen verslunarstjóri stendur hjá hestinum, dætur hans Inger og Guðmunda (aftar) á hestbaki, og hundurinn Herta álengdar. Myndin er að öllum líkindum tekin við norðurgafl Assistentahússins á Eyrarbakka.

Peter Nielsen var verslunarstjóri Lefolii-verslunar á Eyrarbakka 1887-1910 og þekktur fyrir merkar náttúrurannsóknir sínar. Dóttir hans Guðmunda Nielsen (1885-1936) var félagsmálafrömuður og kaupmaður á Eyrarbakka og víðar. Hin dóttirin á myndinni Inger (f.1884) lést um tvítugt á hæli í Danmörku.

Þetta aðfang er í Byggðasafni Árnesinga. Fjöldi færslna hjá safninu var í árslok 2022 sem hér segir: Fornleifar 916, safnmunir 7.418, ljósmyndir 6.788. Í þessum tölum eru safnmunir Sjóminjasafnsins á Eyrarbakka og Tónminjaseturs Íslands.

Söfnun muna til Byggðasafns Árnesinga hófst árið 1953. Safnkosturinn er að stærstum hluta skráður í Sarp.

Allar leiðréttingar og viðbótarupplýsingar eru vel þegnar.


Birting gagna í Sarpi er á ábyrgð viðkomandi safns.