Leita



Vinsamlega sýnið biðlund
Vantar lýsingu


Landfræðileg staðsetning


Ljósmyndari/Höf.Ari Kárason 1919-1997
Myndefni1100 ára afmæli Íslandsbyggðar, Á, Bíll, Fólk, Hátíðardagskrá, Hátíðargestur, Hátíðarsvæði, Hátíðisdagur, Hús, Mannfjöldi, Rúta, Útiskemmtun, Þingstaður, Þjóðhátíð
Ártal1974

StaðurÞingvellir
ByggðaheitiÞingvallasveit
Sveitarfélag 1950Þingvallahreppur
Núv. sveitarfélagBláskógabyggð
SýslaÁrnessýsla (8700) (Ísland)
LandÍsland

Nánari upplýsingar

NúmerAK8-2-27
AðalskráMynd
UndirskráAri Kárason (AK)
GerðSvart/hvít negatíf
GefandiAri Kárason 1919-1997

Lýsing

Þingvellir 1974. 

Haldið upp á 1100 ára afmæli Íslandsbyggðar á Þingvöllum 28. júlí 1974. 

Hátíðarhöldin á Þingvöllum voru sunnudaginn 28. júlí. Fleiri en 50 þúsund manns lögðu leið sína á Þingvelli af þessu tilefni eða ríflega fjórðungur þjóðarinnar. Veðurguðirnir voru hátíðinni hliðhollir.

Fundur í sameinuðu Alþingi á Lögbergi samþykkti með 60 samhljóða atkvæðum að verja einum milljarði króna til gróðurverndar á næstu fjórum árum. Síðan var matarhlé, en eftir hádegi hófst hátíðardagskrá sem stóð fram undir kvöld. Halldór Laxness og Matthías Johannessen fluttu ávarp og Tómas Guðmundsson flutti hátíðarljóð. Forseti Íslands og ýmsir fyrirmenn og gestir erlendra ríkja fluttu árnaðaróskir.

Á heiðursgestapalli voru fulltrúar 30-40 erlendra ríkja og blöktu þjóðfánar þeirra í samfelldri fánaborg skammt frá. Hátíðinni var sjónvarpað beint til allra landsmanna.

Þetta aðfang er í Þjóðminjasafni Íslands. Safnið varðveitir um 7 milljónir mynda, um 130 þúsund muni og rúmlega 26 þúsund færslur um þjóðhætti. Í húsasafni eru um 60 hús.

 

Áætlað er að um 80-90 % þessara aðfanga sé komin í stafrænan búning, mismunandi eftir tegundum. Einnig er skráningin mismunandi ítarleg og myndir bara við hluta gagnanna.


Birting gagna í Sarpi er á ábyrgð viðkomandi safns.

Verðskrá myndapantana