135 Menningaráhrif - Innan girðingar og utan
Kafli 1 af 7 - Tengsl við varnarliðið
Hver voru þín fyrstu kynni af varnarliðinu á Vellinum?
Fékk vinnu 18 ára gömul við þrif á hóteli á vellinum
Komst þú einhvern tímann inn á svæðið?
Já daglega í 6 ár
Áttir þú vin eða vini sem voru í varnarliðinu eða tilheyrðu fjölskyldu sem var hér á vegum hersins? Ef svo er, ertu enn í sambandi við það fólk?
Já ég eignaðist marga vini sem voru í varnarliðinu. Þar á meðal var barnsfaðir minn.
Þekkir þú til þess að bandarískir hermenn hafi kvænst íslenskum konum? Fluttu þær fjölskyldur af landi brott eða settust þær að á Íslandi?
Já. Ég þekkti margar stúlkur sem giftust hermönnum. Þær fluttu allar út með þeim.
Kafli 2 af 7 - Tónlist, útvarp og sjónvarp
Hlustaðir þú á tónlist frá Bandaríkjunum? Hafði koma bandaríkjahers til Íslands áhrif þar á?
Já. Vera mín á vellinum og vinskapur við hermennina hafði mikil áhrif á tónlistarsmekk minn.
Hlustaðir þú á útvarpssendingar frá Vellinum? Af hverju? Þurftir þú að leggja eitthvað á þig til að ná útsendingunni?
Nei
Horfðir þú á sjónvarspútsendingar frá Vellinum (Kanasjónvarpið)? Af hverju? Þurftir þú að leggja eitthvað á þig til að ná útsendingunum?
Nei
Kafli 3 af 7 - Íþróttir
Kannast þú við að einhverjar íþróttir hafi sérstaklega verið stundaðar á Vellinum? Ef svo er, hvaða íþróttir? Fylgdist þú með iðkendum æfa eða keppa?
Baseball. Ég sá nokkra baseball leiki með vinum mínum.
Sóttir þú einhvern tímann landsleik í íþróttahúsi á Vellinum? Manstu hvaða leikur það var?
Nei
Kafli 4 af 7 - Matarmenning og varningur
Segðu frá þínum kynnum af bandarískum mat ef einhver voru. Tileinkaði þín fjölskylda sér bandarískar matarhefðir? Var bandarískur matur á borðum á þínu heimili? Ef svo er, hvers konar matur var það? Var hann eldaður eftir uppskrift? Ef svo er, hvaðan var uppskriftin fengin?
Manst þú eftir einhverjum varningi sem eingöngu var hægt að fá á Vellinum? Hafðir þú aðgang að slíkum varningi? Ef svo er, eftir hvaða leiðum?
Kafli 5 af 7 - Hefðir
Kannast þú við ákveðnar hefðir sem stundaðar voru á Vellinum? T.d. í tengslum við jólahald, hrekkjavöku eða þakkargjörð? Var Íslendingum boðið að taka þátt? Kannast þú við að Íslendingar hafi tekið þessar hefðir upp?
Kafli 6 af 7 - Frásagnir og sögur
Þekkir þú eða hefur heyrt sögur, brandara, gátur eða önnur munnmæli sem tengjast veru bandaríkjahers í Keflavík?
Eru einhverjir málshættir, orðtök eða frasar sem tengjast hernum? Ef svo er, notar þú þá í daglegu tali? En í gríni?
Kafli 7 af 7 - Að lokum
Við hvaða tímabil miðast svörin þín hér að framan?
Er eitthvað sem þú vilt bæta við sem hefur ekki komið fram nú þegar?
Hefur þú einhverjar athugasemdir við þessa spurningaskrá?